Joker myndin er hægelduð steik

Kvikmynd Todd Fields um Jókerinn er nú komin í kvikmyndahús og var tekin fyrir í nýjasta þætti Stjörnubíós. Joker er áhugaverð mynd fyrir margar sakir og hafi maður áhuga á myndlíkingum mætti jafnvel líkja henni við hægeldaða steik, sem sjaldnast er mest seldi rétturinn á matseðlinum. En aldrei þessu vant er áhugi almennings á þessari Jóker steik mikill, líkt og metaðsókn fyrstu sýningarhelgarinnar ber vitni um. Hinsvegar er spurning hvort áhorfandinn sjái eftir að hafa ekki pantað sér hamborgara, þegar hungrið sverfur að. Hildur Guðnadóttir samdi tónlistina við myndina, en af því tilefni gróf gestgjafi þáttarins, Heiðar Sumarliðason, upp rúmlega tuttugu ára gamalt lag eftir hana. Þar syngur hún um táfýlu með hljómsveitinni Woofer. En Stjörnubíó dagsins hefst á þessari tónsmíð, sem var mikið spiluð á X-inu á sínum tíma, en hefur vart heyrst síðan. Það eru Bryndís Ósk Ingvarsdóttir, sviðslistakona, og Hrafnkell Stefánsson, handritshöfundur, sem segja álit sitt á Joker steikinni. Te og kaffi býður upp á Stjörnubíó, alla sunnudaga klukkan 12:00 á X977.

3368
28:44

Vinsælt í flokknum Stjörnubíó