Hvíta tjaldið - Í minningu Ómars Friðleifssonar - Party Zone

Þessi þáttur Party Zone heitir Hvíta tjaldið en við heiðrum minningu Ómars Friðleifssonar, vinar okkar, frumkvöðuls, eðaldrengs og í raun eins umsjónarmanna þáttarins (jafnan kallaður þriðja hjólið í PZ). Ómar lést á dögunum eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Það var ekki amalegt að hafa fyrrum umsjónarmann Danslistans (XL) og Hvíta tjaldsins í gæðaráði þáttarins í öll þessi ár. Við munum minnast hans eins og hann sé með okkur og þá er stuð, nettur derringur og góð tónlist. Tónlistin er eðlilega öll valin af Omma, sannkallað Omma Takeover.

137
2:00:02

Vinsælt í flokknum Party Zone