Appelsínugular viðvaranir á Austfjörðum
Miðja krapprar og djúprar lægðar er nú yfir Austfjörðum og er hún á leið til norðurs og síðar norðausturs. Versta veðrið vegna þessarar lægðar verður á svæðinu frá Tröllaskaga og austur á sunnanverða Austfirði, þar eru í gildi appelsínugular viðvaranir.