Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 22. mars 2026 08:00 Það er oft hlegið í spjalli við Eddu Hermannsdóttur, forstjóra Lyf og heilsu, en líka talað um hlutina í fullri alvöru. Edda er hagfræðingur að mennt, varð ung mamma, starfaði bæði í blaðamennsku og á RÚV, var í framkvæmdastjórn Íslandsbanka, er stjórnarformaður UNICEF og gift Ríkharði Daðasyni fjárfesti og fyrrum atvinnumanni í knattspyrnu. Vísir/Vilhelm „Ég vaknaði snemma og eiginlega starði bara á hann á meðan ég beið eftir að hann vaknaði og bæri spurninguna upp aftur,“ segir Edda Hermannsdóttir forstjóri og skellihlær þegar hún rifjar upp bónorðið frá eiginmanninum Ríkharði Daðasyni.
Sem var vinsamlegast beðinn um að biðja hennar tvisvar! Sagan af bónorðinu er í senn rómantísk og fyndin. Og í samtali við Eddu er oft hlegið upphátt. Svo sem ekki annað hægt. Því sjálfri finnst Eddu gaman að hnykkja út bröndurum eða gera grín að sjálfri sér um leið og hún segir frá. Síðastliðið haust tók Edda við stjórnartaumnum í Lyf og heilsu; sem fyrr í þessum mánuði tilkynnti um að öll apótekin undir þeim hatti, Lyf og heilsa, Apótekarinn, Garðsapótek og Apótek Hafnarfjarðar myndu sameinast vörumerki Apótekarans. Hjá sameinuðu félagi starfa 300 starfsmenn, starfstöðvarnar eru 30 og ljóst að nýi forstjórinn brennur fyrir þeim verkefnum og tækifærum sem fram undan eru. Í dag ætlum við hins vegar að tala minna um vinnuna og meira um lífið. Kynnast betur stúlkunni sem mætti í fyrsta sinn í beina útsendingu á RÚV tveimur dögum eftir fæðingu frumburðarins, er ein af dætrum Hermanns Gunnarssonar heitins, hagfræðingur að mennt, höfundur bókanna Framkoma og Forystuþjóð og frá árinu 2021 hefur Edda verið stjórnarformaður UNICEF. Í dag kynnumst við Eddu. Falleg fjölskylda - fv: Eiður Daði sonur Eddu og Rikka, Ragnheiður dóttir Rikka frá fyrra sambandi, Rikki, Edda og börn Eddu frá fyrra sambandi: Emilía og Sigurður. Besti leikmaðurinn Edda er fædd á Akureyri 18. apríl árið 1986. Móðir hennar er Emilía Jónsdóttir, stjúpfaðir og uppeldisfaðir er Eiður Guðmundsson og sammæðra bróðir er Óli. Edda lýsir fjölskyldu sinni sem mjög náinni og er það föst regla að hringja alltaf í mömmu á leið í vinnu á morgnana. Margt vitum við svo sem um Eddu nú þegar. Því henni kynntumst við fyrst þegar hún byrjaði sem stjórnandi í Gettu betur á RÚV árið 2011 en í Gettu betur starfaði hún í þrjú ár. Á svipuðum tíma varð Edda blaðamaður og aðstoðarritstjóri á Viðskiptablaðinu og í tíu ár starfaði hún í lykilstöðu hjá Íslandsbanka. Eiginmaður Eddu er Ríkharður Daðason, fjárfestir og fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu. Sem þýðir þá líka að Edda er tengdadóttir Ragnheiðar Ríkharðsdóttur fyrrum þingkonu. Edda útskrifaðist sem hagfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2013 og árið 2018-2019 flaug hún reglulega til Barcelona á Spáni til að sækja stjórnunarnám í IESE og á síðustu tveimur árum hefur hún sótt sér viðbótarnámskeið í Harvard. „Fyrsta minningin mín úr æsku eru myndir af Kim Larsen með sígrettustubb í munninum enda elskaði ég tónlistina hans þegar við bjuggum í Danmörku og geri enn,“ segir Edda aðspurð um fyrstu æskuminningarnar.Í Danmörku var Eiður, pabbi Eddu, í námi í verkfræði en fljótlega eftir að heim var komið flutti fjölskyldan aftur á Akureyri. Um sinn gamla heimabæ notar Edda orð eins og yndislegt og dásamlegt. „Þar fékkstu allt það besta sem barn; gast farið á skíði, snjóbretti, labbað út um allt og svo framvegis.“ Edda var fótboltastelpa um tíma. Og greinilega stolt af því: Ég var meira að segja valin besti leikmaður Þórs árið 1998.“ Eitthvað sem við munum heyra aftur um síðar. Alin upp í Danmörku og á Akureyri mátti Edda varla vera að því að mæta í skólann þegar hún var kosin Inspector scholae í MA, svo virk var hún í félagslífinu. Fyrsta útsending Eddu í Gettu betur á Rúv var tveimur dögum eftir að hún eignaðist frumburðinn, þá 21 árs. Ástin, draumar og lítil kríli Það kom snemma í ljós hjá Eddu að hún elskaði félagsstarfið í skólanum. Ekki síst þegar hún var byrjuð í Menntaskólanum á Akureyri þar sem hún endaði með að verða formaður nemendaráðsins; var kosinn Inspector scholae. „Og þá hætti ég nú alveg að hafa tíma til að sinna náminu!“ segir Edda og skellihlær. Hún segir þó að það að vera svona virk í félagslífinu hafi verið góður skóli út af fyrir sig. „Því þar lærði maður að vera með marga bolta á lofti og reyna að halda öllu saman, allt frá því að skipuleggja árshátíðina yfir í fjármálin.“ Að vinna, og það helst sem mest, einkenndi unglingsárin. „Ég byrjaði mjög snemma að vinna og var helst alltaf að vinna í tveimur til þremur vinnum.“ 16 ára á sumrin vann hún til dæmis í fiskvinnslu, þar sem vaktin hófst klukkan 05 á morgnana. Á kvöldin og um helgar vann hún við að baka pizzur. „Enn yngri vann ég við að passa börn og ég var alltaf mjög ákveðin í því að verða ung mamma.“ Börnin voru líka orðin tvö áður en Edda varð 24 ára: Emilía fæddist árið 2008 og Sigurður árið 2010. Barnsfaðir Eddu og fyrrum eiginmaður er Halldór Svavar Sigurðsson en saman eignuðust þau Emilíu árið 2008 og Sigurð árið 2010. „Halldór varð kærastinn minn þegar ég var 16 ára, besti vinur Óla bróður og lengi heimalingur heima hjá mér. Við vorum saman í tólf ár og erum enn góðir vinir, í dag meira að segja nágrannar!“ segir Edda og brosir í kambinn. Lengi stefndi Edda á að verða læknir. „Þegar ég tók fyrsta áfangann minn í anatómíu í Menntaskólanum sá ég að þetta myndi aldrei eiga við mig. Ég ákvað því að verða verkfræðingur eins og pabbi,“ segir Edda og bætir við: „Enda fer skynsamt fólk í verkfræði.“ Foreldrar Eddu eru Emilía og Eiður stjúpfaðir hennar og sammæðra bróðir er Óli. Edda er náin stjúpföður sínum en byrjar alla daga á því að hringja í mömmu sína. Um tíma bjó fjölskyldan í Danmörku vegna náms Eiðs en síðar á Akureyri. Fótboltastjörnur Edda segist búa að því yfir heimalærdómi með börnunum að hafa alltaf haft gaman af stærðfræði og tengdum fögum. Hún ákvað þó fljótlega að hætta í verkfræði og færa sig yfir í hagfræðina. „Þegar ég átti að reikna út burðarþolsgetu brúarmannvirkis áttaði ég mig á því að ég væri á rangri hillu,“ segir Edda og hálfflissar. Áður en Edda fór í háskólanámið, bjó hún reyndar í Barcelona um tíma. „Ég fór með vinkonu minni þangað til að læra spænsku eftir interailferð um Evrópu. Þar hitti ég Röggu og Eið Smára sem buðu mér að verða aupair hjá þeim í smá tíma,“ segir Edda og vísar þar til tímans þegar Eiður Smári Guðjohnsen var í atvinnumennskunni í fótbolta og bjó þá í Barcelona með fyrrum eiginkonu sinni og barnsmóður, Ragnhildi Sveinsdóttur. „Ég var því að passa Guðjohnsen-guttana um tíma,“ segir Edda og brosir. Vissi þó ekki á þeim tíma að mörgum árum síðar myndi hún líka hitta fyrir enn eina fótboltastjörnuna; Ríkharð Daðason. Ég þurfti að gúggla mörkin hans, enda svo ung þegar hann var í atvinnumennskunni,“ segir Edda og skellihlær. Því Rikki er 14 árum eldri en hún, aldursmunur sem hún segir þó að þau skötuhjúin hafi aldrei fundið neitt fyrir. Rikki og Edda byrjuðu að hittast í lok árs 2016. Tveimur árum fyrr hafði Rikki þó sent á Eddu skilaboð á Facebook og stungið upp á kaffibolla. „Það kom þó ekki til greina þá,“ segir Edda og útskýrir að á þeim tíma hafi hún verið frekar nýskilin við Halldór, einstæð með tvö börn og ekki á þeim stað. Síðar fórum við að hittast í gegnum vini og kunningja en ég skal alveg viðurkenna það að þegar við fórum að vera saman var ég ekkert að sjá hann fyrir mér sem kærasta, enda ekkert á höttunum eftir slíku.“ Nú? „Nei, hann átti frekar að vera mitt kæruleysi, ef svo má segja,“ segir Edda og enn á ný heyrist hláturinn. Alvarlegri og af mikilli einlægni bætir Edda þó við: „Rikki er fyndinn og skemmtilegur og við höfum alltaf átt vel saman; gildin okkar eru svo eins. Það kom til dæmis snemma í ljós hvað við viljum sömu hlutina hvað varðar fjölskylduna okkar og uppeldi barna og eitt af því sem ég er mjög þakklát fyrir er hversu vel það gekk að sameina fjölskyldurnar okkar. Í honum á ég líka mikinn vin og ráðgjafa.“ Edda urfti að gúggla sparkmörk Rikka því 14 ára aldursmunur er á þeim og hún segist hafa verið svo ung þegar hann var í atvinnumennskunni. Sjálf er hún dugleg að minna vini og vandamenn á að hún var valin besti leikmaður Þórs árið 1998 - eftir þó mjög stuttan feril í fótbolta.Vísir/Vilhelm Systkinasögur og foreldrar Þegar Edda og Rikki byrjuðu saman átti Rikki eina dóttur, Ragnheiði, fyrir sem nú er 20 ára, Edda átti sín börn og saman eiga þau nú soninn Eið Daða sem fæddist árið 2021. „Ég segi alltaf að við vorum fimm foreldrar að eignast þann dreng,“ segir Edda og hlær. Því það kom snemma í ljós að hin systkinin langaði að eignast eitt systkini sameiginlega. Og ég get alveg sagt þér það að af þessum fimm foreldrum erum það ekki við Rikki sem erum þau ströngustu!“ Þótt Edda tengi æskuna sína við frekar hefðbundið fjölskyldulíf; mamma, pabbi og Óla bróðir, finnst henni það dýrmætt að hafa kynnst fleiri systkinum síðar á lífsleiðinni, samfeðra. Sérstaklega nánar eru systurnar Edda, Eva Laufey, Sigrún og Björg en samfeðra eru líka Hendrik og Þórður, sá fyrrnefndi er nú látinn. „Að kynnast samfeðra systkinum mínum opnaði fyrir mér víddir og hefur verið algjör gullnáma, þótt það hafi ekki gerst fyrr en ég var nánast orðin fullorðin.“Mikið samband er milli hennar og Evu Laufeyjar sem deila ansi miklu. „Enda erum við líkar með margt og okkar saga ekkert ósvipuð. Eva var líka mikið í félagsstörfunum í skóla, fór síðar að starfa í fjölmiðlum og er frökk eins og ég.“ Því já, það að vera frökk hefur alltaf einkennt Eddu líka. „Þegar ég var 18-19 ára og enn búsett á Akureyri setti ég mig í samband við Jóhannes í Bónus og spurði hann hvort hann hefði ekki einhverja vinnu fyrir mig á skrifstofunni þeirra í Reykjavík því mig væri farið að langa að flytja þangað. Jóhannes svaraði mér og mér var boðið starf í framhaldi.“ Edda flutti þó ekki suður það árið. „Nei, mamma stoppaði mig alveg í þessari hugmynd og sagði að þetta væri alls ekki tímabært!“ Hermannsdætur og systur fv: Eva Laufey, Sigrún, Edda og Björg. Bræður þeirra eru Hendrik og Þórður en sá síðarnefndi er látinn. Edda segir það hafa verið mikla gullnámu að kynnast systkinum sínum föðurmegin á fullorðinsárum. Samband systranna er mikið, sérstaklega hennar og Evu Laufeyjar. Að Edda sé dóttir Hermanns Gunnarssonar hefur svo sem áður verið rætt í fjölmiðlum. „Ég vissi alltaf að ég væri Hermannsdóttir en vissi ekki hver þessi Hermann var. Ég hitti hann í fyrsta sinn þegar ég var sjö eða átta ára, þá fór mamma með mig til að hitta hann á kaffihúsi,“ segir Edda. „Í strætóinum á leiðinni á kaffihúsið undirbjó hún mig aðeins með því að segja: Edda, maðurinn sem þú ert alltaf að horfa á í sjónvarpinu; það er pabbi þinn Hermann.“ Því já, auðvitað var Edda að horfa á Hemma Gunn í sjónvarpinu eins og allir aðrir Íslendingar á þessum tíma. Landsfrægari mann var varla hægt að finna á Íslandi. „Ég viðurkenni að á kaffihúsinu sat ég allan tímann hálfhissa yfir því að sitja núna andspænis manninum í sjónvarpinu, nú vitandi það að hann væri tengdur mér.“Edda var þó ekki í sambandi við Hermann næstu árin eftir þetta. „Eitt sinn var Hermann með Bylgjulestinni á Akureyri og fór ég með vinkonum mínum til hans, vatt mér að honum og spurði: Veistu ekki hver ég er?“ rifjar Edda upp en bætir við: „Hann var nú ekki alveg að kveikja á mér strax en seinna rifjuðum við upp þetta atvik og gátum gert grín að því þá.“ Áður en Hermann lést árið 2013, höfðu feðginin þó kynnst nokkuð. „Ég flyt til Reykjavíkur um tvítugt og við förum að kynnast upp úr því. Ég var forvitin að vita hvaða gen ég fengi frá honum en ég myndi ekki lýsa sambandinu okkar sem þessu dæmigerða sambandi dóttur og föður,“ segir Edda og bætir við: „Enda átti ég pabba fyrir sem ég er mjög náin.“ Oft hittust Edda og Hermann á Jómfrúnni með systrunum og þá var oft mikið hlegið og mikið gaman. „Hann var duglegur að spyrja okkur systkinin spjörunum úr. Það var hans leið til að forðast það að fá spurningar sjálfur.“ Barátta Hermanns við Bakkus var flestu fólki kunnug; hefur þú sem barn alkóhólista haft áhyggjur af því að fíknigenin hafi þú erft? „Já, ég hef alveg hugsað um það eins og aðrir og um tíma hugsaði ég meira að segja mjög mikið um þetta. Var mjög varkár þegar ég byrjaði að drekka,“ segir Edda og bætir við: „Ég byrjaði lítið að smakka áfengi fyrr en 27-28 ára en þegar ég var 21 árs fékk ég mér þó einn Breezer með vinkonum mínum í útlöndum. Ég hringdi í mömmu og pabba daginn eftir og tilkynnti þeim formlega að nú væri ég byrjuð að drekka áfengi.“ Edda vissi alltaf að pabbi hennar héti Hermann en vissi ekki hver hann var fyrr en hún hitti hann sjö átta ára gömul og mamma hennar sagði henni að pabbi hennar væri maðurinn sem hún væri alltaf að horfa á í sjónvarpinu. Vísir/Vilhelm Bankageirinn og blaðamennska Þegar Edda flutti til Reykjavíkur byrjaði hún að vinna í Landsbankanum. „Ég sá alltaf fyrir mér að verða snemma mamma. Ekki aðeins vegna þess að ég hafði gaman af börnum og oft að passa börn þegar ég var lítil. Heldur líka af praktískum ástæðum því ég sá fyrir mér ákveðinn sveigjanleika fylgja því að eignast börn á meðan ég væri í háskólanámi.“ Auðvitað reyndi þó á að púsla saman foreldrahlutverkinu og að halda náminu til streitu. „Þegar Sigurður var nýfæddur sendi ég tölvupósta á nokkra kennara mína í háskólanum til að athuga hvort ég mætti mögulega mæta með hann einstaka sinnum í tíma, þannig að ég gæti haldið áfram náminu ótrauð,“ rifjar Edda upp og segir: Tveir eða þrír sögðu nei en síðan fékk ég svarpóst frá einum kennara sem sagði; já endilega, ég hlakka til að kynnast Sigurði litla.“ Umræddur kennari var Ásgeir Jónsson, núverandi Seðlabankastjóri. En hvernig var að vera mamma svona ung, í námi og að vinna þess á milli? „Horfandi til baka finnst mér þetta í raun alveg ótrúlegt því það var svo mikið að gerast á sama tíma. Ég var í skóla, að vinna í Gettu betur, með tvö ung börn og man til dæmis eftir lungnabólgu heima fyrir á sama tíma og ég var í prófum og lítið sofið,“ segir Edda og bætir við: „Ég man líka að ég mætti alltaf með Sigurð lítinn með mér á fundi hjá RÚV á fimmtudögum því þá tókum við æfingar fyrir Gettu betur.“ Á föstudagskvöldum var þátturinn síðan sýndur í beinni útsendingu með fullan sal af nemendum að hvetja sitt lið. Hvernig fannst þér að vera orðin fræg? „Ég hugsaði það reyndar mjög lítið og hef aldrei velt því mikið fyrir mér almennt,“ svarar Edda rólega. Þótt margt hafi verið í gangi á sama tíma og Edda var meira að segja einstæð móðir um tíma líka því hún og Halldór slitu samvistum árið 2014, segist Edda alltaf hugsa til baka um þennan tíma með hlýju í hjartanu. Edda var orðin tveggja barna móðir 24 ára og þá þegar orðin þekkt af skjánum hjá RÚV og í fjölmiðlaviðtölum. Hún segist þó aldrei hafa velt frægðinni nokkuð fyrir sér. Edda sá ákveðinn sveigjanleika í því að eignast börn ung og á meðan hún væri enn í námi. Þegar Edda útskrifaðist sem hagfræðingur byrjaði hún að vinna aftur hjá Landsbankanum. Þremur dögum eftir að hún byrjaði hringir ritstjóri Viðskiptablaðsins í hana og býður henni starf. „Þá hringdi ég strax í pabba og spurði hvað ég ætti að gera. Því auðvitað leit það ekkert vel út að hætta í nýju starfi eftir aðeins þrjá daga,“ segir Edda. „Pabbi hvatti mig til að fylgja eftir innsæinu og magatilfinningunni og ég sé ekki eftir að hafa slegið til. Lærði líklega svipað, ef ekki meira, sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu í þrjú ár miðað við allan tímann í háskólanum enda önnum kafin þau ár með lítil börn.“ Árið 2014 var Edda orðin aðstoðarritstjóri og aðspurð segist hún alveg hafa séð fyrir sér að framtíðarvettvangurinn yrði í fjölmiðlum. „Já, ég sá það alveg fyrir mér. Enda hafði ég sótt um Kastljós örugglega tvisvar áður en ég varð tvítug ára,“ segir Edda. „Sem næsta skref eftir Viðskiptablaðið sá ég alveg fyrir mér að fara aftur í einhvers konar fréttaskýringar í sjónvarpi. Dagskrárgerðin þar togaði alveg í mig en þó fann ég alltaf að áhuginn beindist efnislega að viðskiptahlutanum.“ Örlögin leiddu hana þó í aðra átt. Og það til Íslandsbanka; að vinna með fólki sem hún hafði oft skrifað um. „Í Molaskrifunum mínum á Viðskiptablaðinu leyfði ég mér meira að segja að gera óspart grín að þeim. Ekki síst fólkinu í Íslandsbanka,“ segir Edda og útskýrir hversu fjarri það hafi verið í hennar huga að fara að vinna í banka. „Birna Einarsdóttir bankastjóri bað mig um að hitta sig. Byrjaði á því að segja við mig: Þú ert nú alltaf með alla þessa brandara…,“ segir Edda og rifjar upp aðdragandann að starfinu í Íslandsbanka. „Þótt ég hefði samþykkt að hitta Birnu var ég ekki á þeim buxunum að þiggja starf í bankanum. En ég heillast oft af fólki og það átti við um hana. Ég var líka heilluð af þeirri vinnustaðamenningu sem þarna ríkti.“ Edda gerði óspart grín að forkólfum Íslandsbanka þegar hún var blaðamaður á Viðskiptablaðinu og síðar aðstoðarritstjóri. Edda ætlaði sér alls ekki að fara að vinna í banka en heillaðist af Birnu og fyrirtækjamenningunni í Íslandsbanka þar sem hún endaði með að starfa í tíu ár. Nýja starfið og baksturinn Edda byrjaði á því að ráða sig á samskiptasvið bankans árið 2015. Tveimur árum síðar tók hún við greiningardeildinni og árið 2019 tók hún við markaðsdeildinni. Frá árinu 2017 sat hún í framkvæmdastjórn bankans, langyngst. „Ég held að Birna hafi viljað fá mig til liðs við bankann því ég þekkti það viðhorf og sjónarmið sem ríkir hjá fjölmiðlum gagnvart bönkunum og er oftast harla ólíkt því sem bankarnir oft telja sjálfir. Ekki síst með tilliti til þess hvað telst fréttnæmt og hvað ekki,“ útskýrir Edda. „Birna sagði samt strax við mig að hún myndi aldrei ætlast til þess að ég gerði eitthvað sem mér hugnaðist ekki sjálfri, ég ætti aldrei að fara gegn mínum eigin gildum. Þetta fannst mér skipta miklu máli og mér hefur fundist þetta gott veganesti æ síðan.“ Þegar Edda réði sig til Íslandsbanka var hún einstæð móðir. „Það var líka lærdómsríkur tími. Ekki aðeins vegna þess að ég lærði vel á þeim tíma að standa á eigin fótum, heldur var þetta líka dýrmætur tími til að kynnast sjálfri mér og átta mig á því hvert ég vildi stefna í lífinu, við Halldór vorum svo ung þegar við byrjuðum saman.“ Hæðir og lægðir fylgja hverjum starfsvettvangi. Ekki síst bankaumhverfinu. Um Íslandsbankamálið svokallaða árið 2023 segir Edda. „Auðvitað tók ég það nærri mér. Mér fannst þetta erfiður tími og erfið upplifun. Vissi að það væri engan veginn hægt að útskýra allt eða að fá alla til að skilja betur hvernig hlutirnir gengu fyrir sig og svo framvegis,“ segir Edda um aðdragandann að því þegar Birna Einarsdóttir lét af störfum sem bankastjóri. „En starfinu fylgdi það einfaldlega að við þurftum að setja undir okkur hausinn og takast á við stöðuna sem upp var komin. Jón Guðni Ómarsson tekur við sem bankastjóri og ég held að það hafi hjálpað mikið að við ákváðum strax að vera auðmjúk í og vera meðvituð um að traustið hefði brotnað og okkar verk fælist í að vinna það upp á ný. Samstarf okkar Jóns Guðna var líka einstaklega gott enda komum við með mjög ólíka hæfileika að borðinu sem við brosum oft yfir.“ Hjá sameinuðu félagi starfa um 300 starfsmenn á 30 starfstöðvum um land allt og segist Edda sjá óendanleg tækifæri í heilsugeiranum næstu árin. Við forstjórastarfinu tók hún síðastliðið haust en lokaritgerðin hennar í háskólanum á sínum tíma var einmitt um heilsuhagfræði.Vísir/Vilhelm Að Edda hafi svissað yfir í heilsugeirann er í raun ekki eins fjarlægt og mætti halda. Því ritgerðin hennar í hagfræðinni var um heilsuhagfræði. „Þetta er búið að vera törn,“ segir Edda um síðustu vikur og mánuði. „Ég setti það sem forgang hjá mér að heimsækja öll apótekin okkar um land allt þegar ég byrjaði og síðan hafa síðustu vikur verið strembnar í stefnumótunarvinnunni sem við kláruðum síðan og kynntum í raun afraksturinn af henni þegar við tilkynntum um sameininguna undir vörumerkinu Apótekarinn.“ Sem stjórnandi vill Edda þó ekki taka sig of hátíðlega.„Við héldum árshátíð um síðustu helgi og í stað þess að fara upp á svið og byrja á því að halda ræðu eins og hefð er fyrir hjá forstjórum, ákvað ég að taka lagið Totally eclipse of my heart með Bonnie Tyler,“ segir Edda og hlær. „Sem ég eiginlega öskursöng!“ Edda kláraði þó lagið við mikinn fögnuð áheyrenda, þau hafa kannski ekki þorað öðru. Fv: Edda með framkvæmdastjórn Lyf og heilsu. Th: Edda ákvað að byrja ekki á ræðu á árshátíð starfsmanna eins og flestir forstjórar gera þegar þeir stíga á svið. Heldur söng hún lagið Total Eclipse of the Heart með Bonnie Tyler. Edda hvílir hugann með því að njóta samverunnar með fjölskyldunni, hreyfa sig og með því að baka. Baka? „Já, ég elska að baka,“ segir Edda og hlær. „Mín hugleiðsla er að baka en ég viðurkenni að ég á það til að verða svolítið stórtæk. Tilkynnti til dæmis að ég ætlaði að baka köku fyrir hvert apótek sem ég heimsótti, því það var forgangsverkefni hjá mér þegar ég byrjaði hjá Lyf og heilsu að heimsækja öll apótekin okkar á landinu,“ segir Edda en viðurkennir að henni hafi nú ekki tekist betur en það að hún skuldi um tuttugu apótekum um land allt heimabakaða köku. En er bakstur ekki sérfræði Evu Laufeyjar systur þinnar? „Jú, en ég vil nú meina að hún hafi stolið þeirri sérfræði af mér!“ hrópar Edda og hlær. Að systurnar hafi báðar unun að því að baka er reyndar svolítið skemmtilegt atriði. Því þótt Edda og Eva Laufey hafi ekki kynnst fyrr en nánast fullorðnar hafa þær ekki aðeins myndað æðislegt systrasamband heldur eru þær líka svo gott dæmi um það hvernig genatengsl geta í raun speglast í fólki. „Því við erum svo líkar með svo margt. Hún var líka á fullu í félagsstarfinu í skóla, stúdentapólitíkinni, fór í fjölmiðla og síðar markaðsmálin,“ segir Edda.Báðar hafa þær líka gefið út bækur. Eva Laufey semur uppskriftabækur en Edda bókina Framkoma. Sagan af bónorði Eddu er í senn fyndin og rómantísk en til öryggis bað hún Rikka um að biðja sín tvisvar. Sem hann og gerði en náði þó að gera henni grikk og þykjast ekki muna eftir neinu. Edda lenti í smá basli þegar brúðkaupið var ákveðið í Flórens á Ítalíu og endaði með að segja ráðgjafafyrirtæki við Como-vatn að hún og Rikki væru hætt við að giftast.Vísir/Vilhelm Ástin og framtíðin Þótt Rikki teljist einn af okkar ástsælustu atvinnumönnum í fótbolta segist Edda vera sú sem mest státar sig af fyrri afrekum. „Ég minni fólk mjög oft á að ég var valinn besti leikmaðurinn 1998,“ segir hún; nú orðin stolt fótboltamamma eins og kallað er. Þegar Edda talar um fjölskylduna, eða þau hjónin, eru nokkur lykilorð nokkuð áberandi í tali. Orðið „fyndið“ er oft nefnt. Ekki síst þegar talið berst að Rikka eða þeim hjónum saman. Setningar heyrast oft eins og: Hann er svo fyndinn og skemmtilegur. Þessi skemmtilegi maður. Að eitthvað hafi verið svo fyndið og skemmtilegt. Að Rikka hafi fundist hún fyndin og skemmtileg. Húmor er því augljóslega lykilatriði í lífi Eddu. Sem samstarfsfólk hefur lýst sem mjög stríðinni á köflum.Kom því vel á vondan morguninn áðurnefnda, þegar Edda vaknaði snemma eftir fyrsta bónorð Rikka og beið eftir að hann vaknaði. „Ég greip brúðarvönd Ragnhildar Steinunnar og þótt ég hafi verið að gera það upp á grín lagði ég mig alveg fram; hljóp, stökk upp, gaf olnbogaskot og allt,“ segir Edda og lýsir atvikinu eins og í bíómynd sem hún væri aðeins að gera grín að. Fagnaðarlætin brutust út og þótt Rikki hafi ekki séð atvikið, byrjaði fólk fljótt að hvetja hann áfram og hrópa: „Rikki, Rikki, Rikki…“ Enda siður að konan sem grípur vöndinn sé sú næsta upp á altari. „Þegar þessi fyndni maður áttaði sig á aðstæðum gerði hann sér lítið fyrir og fór á skeljarnar,“ segir Edda og nú sést svo sannarlega ástarblikið í augunum. „Mér fannst nú ekki erfitt að segja já við þennan mann. En til öryggis bað ég hann um að bera spurninguna upp aftur daginn eftir.“ Allt ætlaði um koll að keyra í brúðkaupinu og ekki nema von að Edda hafi vaknað snemma morguninn eftir, starað á sinn heittelskaða og beðið spennt eftir endurteknu bónorði. En þegar hann loksins vaknaði, teygði hann úr sér og sagði: Jahérna hér, ég man eiginlega ekkert eftir kvöldinu í gær – en þú?“ Parið gifti sig þó 2022 í Flórens á Ítalíu. Brúðkaup sem frestaðist aðeins vegna Covid og átti upphaflega að vera haldið við Como-vatn. „Ég var búin að vera að skrifast á við brúðkaupsráðgjafafyrirtæki við Como-vatn í tvö ár þegar við Rikki rekumst á stað sem við gistum á við Flórens og einfaldlega vissum að væri rétti staðurinn.“Þessi bíræfni og á tímum stríðni forstjóri var þó ekki meiri bógur í sér en það að þora ekki að segja fólkinu við Como-vatn að þau myndu gifta sig í Flórens. Ég bara einfaldlega kom mér ekki til þess og endaði með að senda þeim tölvupóst og segja að við værum hætt við að giftast.“ Sem Como-vatn - fólkinu fannst auðvitað mjög miður. „Þau sendu mér fallegan svarpóst til baka, með hugheilum kveðjum og óskum um að ég myndi finna ástina á ný,“ segir Edda hlær. En svarar næstu spurningu nokkuð alvarlegri á svip en skælbrosandi þó. Hvar sérðu fyrir þér að þú verðir eftir tíu ár? „Ég held – og að minnsta kosti vona – að ég verði hér enn, í sama starfi og í sama fyrirtæki. Því ég hef svo sterka sannfæringu fyrir því að svo margt spennandi sé að fara að gerast í heilsutengdum málum næstu árin þannig að fyrir mér er þetta vegferð sem er bara rétt að byrja.“ Svona eins og fyrsti kaflinn í nýrri ævintýrabók…
Tengdar fréttir „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ „Við erum að missa það frá okkur að leyfa krökkum að vinna. Mér finnst það miður,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted forstjóri Festi. 29. desember 2024 08:00 „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ „Það má segja að bankahrunið hafi gefið mér þá hugmynd. Ég lá yfir öllum fréttasíðum og las allt sem ég gat um hrunið. Hagfræðin gaf mér tækifæri til að skilja betur hvernig fjármálakerfið gat umturnað heilu þjóðfélagi,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, þegar hann útskýrir hvers vegna hann fór í meistaranám í fjármálahagfræði í Oxford í Bretlandi. 7. júlí 2024 09:00 „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Það er auðvelt að hafa gaman af spjallinu við nýjan forstjóra Advania: Hildi Einarsdóttur. Því hún hlær oft, talar hratt og á auðvelt með að gera grín að sjálfri sér. 25. maí 2025 08:02 Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Stemningin var gífurleg og eftirspurnin eftir því: Ríflega 31 þúsund manns keyptu hlut í Íslandsbanka í maí. Svo mikil var stemningin að dagana eftir útboðið var upplifunin af því að lesa nafnalista kaupenda bankans eins og að lesa djúsí fréttir um „hverjir voru hvar.“ 29. júní 2025 08:01 Hermann í Kemi: „Kom mér mjög á óvart að verða svona ástfanginn“ Flest okkar höfum heyrt í Hermanni Guðmundssyni í fjölmiðlum. Til dæmis skrafhreifinn á Bylgjunni; ófeiminn við að segja hvað honum finnst um þjóðmálin eða fréttir. Enda fínn í útvarpi; á frægan bróður þar eins og hann segir sjálfur. 16. mars 2025 08:00 Mest lesið Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Atvinnulíf Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Viðskipti innlent Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Viðskipti innlent Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Viðskipti innlent Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Atvinnulíf „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Viðskipti innlent Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Neytendur Fleiri fréttir Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Réttu tækifærin opnuðust þegar sumarstarfsmaður var ráðinn sem sendill „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Þegar óvissa vegna breytinga vofir yfir í langan tíma Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Í röngu starfi og vansæl Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Slangur, menning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli kynslóða Óþolandi spjallmenni: „Ég bið alltaf um manneskju“ Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt Snjallvinna er ekki það sama og fjarvinna eða hybrid Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Samfélagsmiðlar á vinnutíma: Hversu oft og hvers vegna Vann hjá Amazon, með áhyggjur af Trump, reynslu af Rússum en kominn heim Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Glæpamenn í fjarvinnu Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Sjá meira
„Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ „Við erum að missa það frá okkur að leyfa krökkum að vinna. Mér finnst það miður,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted forstjóri Festi. 29. desember 2024 08:00
„Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ „Það má segja að bankahrunið hafi gefið mér þá hugmynd. Ég lá yfir öllum fréttasíðum og las allt sem ég gat um hrunið. Hagfræðin gaf mér tækifæri til að skilja betur hvernig fjármálakerfið gat umturnað heilu þjóðfélagi,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, þegar hann útskýrir hvers vegna hann fór í meistaranám í fjármálahagfræði í Oxford í Bretlandi. 7. júlí 2024 09:00
„Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Það er auðvelt að hafa gaman af spjallinu við nýjan forstjóra Advania: Hildi Einarsdóttur. Því hún hlær oft, talar hratt og á auðvelt með að gera grín að sjálfri sér. 25. maí 2025 08:02
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Stemningin var gífurleg og eftirspurnin eftir því: Ríflega 31 þúsund manns keyptu hlut í Íslandsbanka í maí. Svo mikil var stemningin að dagana eftir útboðið var upplifunin af því að lesa nafnalista kaupenda bankans eins og að lesa djúsí fréttir um „hverjir voru hvar.“ 29. júní 2025 08:01
Hermann í Kemi: „Kom mér mjög á óvart að verða svona ástfanginn“ Flest okkar höfum heyrt í Hermanni Guðmundssyni í fjölmiðlum. Til dæmis skrafhreifinn á Bylgjunni; ófeiminn við að segja hvað honum finnst um þjóðmálin eða fréttir. Enda fínn í útvarpi; á frægan bróður þar eins og hann segir sjálfur. 16. mars 2025 08:00