Innlent

Krafta­verk við hitaveitulögnina

Oddur Ævar Gunnarsson og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Vísir/Egill

Íbúar á Reykjanesi ættu allir að vera komnir aftur með heitt vatn á ný í síðasta lagi í nótt. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir að um kraftaverk sé að ræða en fjörutíu pípulagningamenn eru í viðbragðsstöðu í kvöld.

„Það hefur gengið mjög vel samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef bæði frá orkufyrirtækjunum og líka frá íbúum,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Fjörutíu pípulagningamenn frá almannavörnum og HS Veitum hafa verið á viðbragðsvakt í kvöld ef ske kynni að íbúar lendi í vandræðum. Atli Gunnarsson, aðgerðarstjóri lögreglunnar á Suðurnesjum, segir kvöldið hafa farið vel af stað.

„Núna seinni partinn voru búnar að berast um það bil svona fimmtán til tuttugu beiðnir til þeirra frá íbúum,“ segir Atli. Hann býst við mestu álagi eftir kvöldmat.

Áhugaverð ferð um Svartsengi

Kjartan Már segir að tíma taki fyrir heita vatnið að seytla í gegnum allt kerfið. Allir íbúar ættu að vera komnir með heitt vatn í síðasta lagi í nótt. Sjálfur fór hann í kynningarferð ásamt forsætisráðherra um Svartsengi í dag.

„Mér fannst þessi ferð um svæðið í dag ótrúlega áhugaverð, fyrir margra hluta sakir. Við erum fyrst og fremst ánægð með það hvað þetta hefur tekið stuttan og skamman tíma,“ segir Kjartan.

„Menn hafa unnið þarna hörðum höndum og í raun gert kraftaverk að mínu mati. Maður upplifir það mjög vel í dag hvað þetta er mikið þrekvirki sem þessir hundruðir starfsmanna sem þarna unnu um helgina hafa náð í gegn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×