Atvinnulíf

Já­kvæður stjórnandi getur gert gæfu­muninn en fjögur lykil­at­riði þarf þó til

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Margir stjórnendur telja sig eflaust jákvæða en til þess að ná að beita því sem kallast jákvæð forysta, þarf fjögur lykilatriði til. Ingrid Kuhlman hjá Þekkingarmiðlun útskýrir fyrir okkur hver þessi atriði eru og hvers vegna jákvæð forysta skilar meiri árangri.  
Margir stjórnendur telja sig eflaust jákvæða en til þess að ná að beita því sem kallast jákvæð forysta, þarf fjögur lykilatriði til. Ingrid Kuhlman hjá Þekkingarmiðlun útskýrir fyrir okkur hver þessi atriði eru og hvers vegna jákvæð forysta skilar meiri árangri.   Vísir/Vilhelm

„Við mannfólkið erum yfirleitt fljótari að vinna úr og muna jákvæðar upplýsingar en neikvæðar,“ nefnir Ingrid Kuhlman, leiðbeinandi og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun, sem dæmi um hvers vegna leiðtogar vinnustaða ættu að leggja áherslu á jákvæða forystu.

Að tala á jákvæðum nótum er hluti af því sem hugtakið jákvæð forysta felur í sér, en um hana ætlum við að læra nánar í dag.

„Rannsóknir hafa sýnt að við verjum allt að 20% meiri tíma í að hugsa um jákvæðar fullyrðingar en neikvæðar og allt að 50% meiri tíma í jákvæðar en hlutlausar fullyrðingar,” segir Ingrid.

Fjögur lykilatriði

Ingrid, sem sjálf er með meistaragráðu í jákvæðri sálfræði, hefur meðal annars rýnt í kenningar Kim Cameron um jákvæða forystu. Um hana fjallar Cameron í bók sinni Positive Leadership: Strategies for Extraordinary Performance. Sjálfur er Cameron prófessor við háskólann í Michigan í Bandaríkjunum og stofnandi Center for Positivie Organizations.

„Samkvæmt kenningum Camerons er grunnhugmynd jákvæðrar forystu sú að allar lífverur laðist að jákvæðri orku, rétt eins og plöntur sem leita í átt að ljósi, og forðist myrkur,“ segir Ingrid.

Í umræddri bók segir Cameron fjögur lykilatriði þurfa til svo hægt sé að tala um jákvæða forystu. Þessi atriði eru:

1.Jákvætt vinnuumhverfi en það felur meðal annars í sér að veita starfsmönnum stuðning og hvatningu, koma fram við þá af heilindum og meta þá að verðleikum. 

Jákvætt vinnuumhverfi gerir starfsmönnum kleift að fara fram úr væntingum og ná framúrskarandi árangri. 

Með því að einblína á styrkleika og hæfileika þeirra, veita þeim umboð til athafna og bjóða upp á þjálfun og leiðsögn fá starfsmenn tækifæri til að blómstra og nýta hæfileika sína til fulls.

2.Jákvæð tengsl: Jákvæðir leiðtogar beita virkri hlustun, hafa opin samskipti, sýna einlægan áhuga á starfsmönnum og er umhugað um velferð þeirra. Þeir leggja ríka áherslu á að byggja upp traust og sterk tengsl við starfsmenn. 

Rannsóknir Camerons hafa sýnt að jákvæð tengsl leiða til aukinnar starfsánægju, meiri hollustu starfsmanna og aukins árangurs.

3.Jákvæð samskipti eru opin, gagnsæ og uppbyggileg. Jákvæðir leiðtogar fagna árangri, veita skýra og uppbyggilega endurgjöf og stuðla að opinni umræðu til að fá sem fjölbreyttust sjónarmið. 

Cameron bendir á að þó að jákvæð samskipti séu mikilvæg þurfi leiðtogar einnig að vera færir um að hjálpa starfsmönnum við að takast á við áskoranir með því að einblína á lausnir og tækifæri til vaxtar.

4.Jákvæður tilgangur: Jákvæðir leiðtogar móta skýra og sannfærandi sýn og hjálpa starfsmönnum að átta sig á því hvernig starf þeirra tengist stærri tilgangi. Cameron hefur sýnt fram á að þegar fólk finnur jákvæðan tilgang í því sem það er að gera eykur það líkurnar á að það blómstri í starfi auk þess sem það upplifir minna álag. 

Veikindadagar eru færri hjá starfsmönnum sem upplifa starfið mikilvægt, þeir sýna meiri áhuga, eru ánægðari og endast lengur í starfi. Þeir hafa auk þess meiri siðferðisvitund.

Vellíðan eykur árangur

Margar rannsóknir hafa sýnt að jákvæðni eykur lífslíkur.

„Eitt slíkt dæmi er rannsókn David Snowden og samstarfsfólks hans á dagbókum 180 nunna í Systraskóla Notre Dame. Niðurstöðurnar bentu til þess að þær nunnu sem notuðu jákvæð orð um líðan sína á þrítugsaldri lifðu að meðaltali um tólf ár lengur en þær sem tjáðu sig um leiða, vonleysi eða svartsýni,” segir Ingrid.

Að líða vel eykur líka líkurnar á að okkur gangi betur og að við séum fær um að ná betri árangri en ella.

Þar spilar jákvæðnin lykilhlutverk og nefnir Ingrid sem dæmi kenningu Barböru Fredrickson sem segir að neikvæðar tilfinningar geti þrengt fókus okkar og einbeitingu, öfugt við þau áhrif sem jákvæðar tilfinningar hafa.

Að upplifa jákvæðar tilfinningar, svo sem hamingju og vellíðan, eykur ekki aðeins færni okkar til að tengjast öðrum á dýpri hátt heldur stuðla jákvæðar tilfinningar einnig að aukinni hugmyndaauðgi og sköpunarkrafti. 

Auk þess gera þær okkur úrræðabetri og auka þol okkar gagnvart mótlæti.“ 

Þá nefnir hún að mikilvægi þess að leiðtogar sýni gott fordæmi.

„Með því að sýna starfsmönnum að hann meti þá og styðji eykst hollusta þeirra auk þess sem frammistaðan verður betri. Leiðtogi sem tekst á við erfiðleika og áskoranir með jákvæðni og seiglu sýnir starfsmönnum hvernig er hægt að takast á við mótlæti,“ segir Ingrid og bætir við:

„Leiðtogi sem leggur áherslu á sjálfsþekkingu og persónulegan vöxt og passar vel upp á sjálfan sig sýnir starfsmönnum mikilvægi þessara þátta.“


Tengdar fréttir

Geðheilsa starfsfólks: „Þú átt tvo fría tíma eftir“

„Viðtökurnar hafa verið mjög góðar. Um 30% starfsfólks hefur nýtt sér þjónustuna og bókað viðtöl,“ segir Hrefna Sif Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Tixly um það hvernig starfsmenn fyrirtækisins hafa nýtt sér Velferðatorg Tixly á Köru Connect.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×