Atvinnulíf

Þegar að yfirmaðurinn fer á grátt svæði

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er erfið staða að takast á við þegar að yfirmaðurinn okkar biður okkur um að gera eitthvað sem við teljum siðferðislega rangt að gera þótt það sé ekki ólöglegt.
Það er erfið staða að takast á við þegar að yfirmaðurinn okkar biður okkur um að gera eitthvað sem við teljum siðferðislega rangt að gera þótt það sé ekki ólöglegt. Vísir/Getty

Það getur verið erfitt að standa frammi fyrir því að yfirmaðurinn fari á grátt svæði og biðji starfsmann um að gera eitthvað sem er í rauninni rangt. Ekki endilega ólöglegt en svo sannarlega á gráu svæði. 

Sem dæmi má nefna ef yfirmaðurinn þinn biður þig um að bæta ósanngjörnum taxta á reikning til viðskiptavinar þannig að hann verði ofrukkaður og þér líður ekki vel með það.

Eða ef yfirmaðurinn þinn biður þig um að fiffa til einhverjar tölur eða upplýsingar þannig að gögn líti betur út. Og þér líður ekki vel með það.

Eða ef yfirmaðurinn þinn biður þig um upplýsingar um samstarfsfélaga sem þú getur veitt, en þér líður ekki vel með það.

Hvernig er hægt að bregðast við?

Hér eru nokkur góð ráð sem geta hjálpað þegar svona aðstæður koma upp.

Ertu örugglega að skilja aðstæðurnar rétt?

Fyrir það fyrsta þurfum við að vera viss um að við séum að meta og skilja stöðuna rétt. Því við viljum ekki bregðast rangt við eða fara í uppnám fyrir misskilning.

Ef þú ert ekki viss, getur þú beðið yfirmanninn þinn um að endurtaka eða staðfesta það sem verið var að biðja þig um og þá þannig að fyrirmælin séu enn skýrari.

Treystu innsæinu þínu

Ef það liggur alveg ljóst fyrir að það sem verið er að biðja þig um er eitthvað sem þér finnst ekki rétt að gera, verður þú að taka mark á því hvað innsæið þitt er að segja þér.

Því ef tilfinningin er mjög óþægileg og þú ert með sterka sannfæringu um að þetta sé eitthvað sem þú átt alls ekki að gera, verður þú að treysta þeirri tilfinningu.

Mikilvægt að standa á gildum sínum

Fyrir okkur öll, er mikilvægt að standa á þeim gildum sem við höfum. Þótt þetta sé vinnan þín og þú viljir fyrir alla muni ekki missa þessa vinnu, er aldrei rétt ákvörðun að gera eitthvað sem maður hreinlega veit að er rangt.

Við þurfum öll að lifa með þeim ákvörðunum sem við tökum og þótt starfsframinn sé okkur mikilvægur, eru gildin okkar það líka.

Þess vegna þurfum við að koma hreint fram og láta yfirmanninn vita að við getum ekki gert það sem beðið var um.

Ekki fresta vegna óþæginda

Eitt af því sem einkennir hið mannlega eðli er að við eigum það til að fresta því sem óþægilegt er.

Þótt við séum mikið að hugsa um það og jafnvel andvaka.

Að taka af skarið getur verið mjög erfitt en í máli sem þessu er mikilvægt að falla ekki í þá gryfju að fara að ýta hlutunum á undan sér og fresta. Því það að bíða of lengi getur gert þér erfiðara um vik að komast út úr aðstæðunum.

Spurðu og spurðu og spurðu....

Það besta sem þú gerir í svona aðstæðum er að spyrja spurninga. 

Og þá eins margra spurninga og þarf. 

Ekki gefast upp, heldur halda áfram að spyrja.

Þetta getum við gert á kurteisan hátt. Tökum dæmi:

„Fyrirgefðu en mig langar til að skilja aðeins betur hvers vegna þú vilt að ég geri þetta X því ég er ekki alveg að sjá hvers vegna það er rétt?”

Og þótt þú fáir svar en vitir enn að þetta er rangt, heldur þú áfram og segir:

„Já en getur þú útskýrt fyrir mér hvers vegna við gerum þetta svona en ekki eins og á að gera þetta?”

Og svo framvegis.

Að rökræða við yfirmanninn

Eitt sem er gott að hafa í huga er að yfirmenn gera líka mistök. Þess vegna getum við líka átt von á því að með því að opna samtalið við yfirmanninn, vera dugleg að spyrja margra spurninga og rökræða, opnast augun hjá viðkomandi um að hann er ekki að leiðbeina þér í rétta átt.

Eins getur verið gott að benda á aðrar lausnir sem ekki teljast á gráu svæði. Í þessu samtali væri þá hægt að benda á að kosturinn við þá lausn sé að hún sé siðferðislega betri, sem komi betur út fyrir alla aðila: Yfirmanninn, starfsfólkið og vinnustaðinn.


Tengdar fréttir

Um yfirmanninn sem truflar mann stöðugt

Það getur verið erfitt að eiga samstarfsfélaga sem trufla mann mikið við vinnu. En þegar það er yfirmaðurinn sem er stanslaust að trufla, geta málin virst nokkuð flóknari að takast á við. Því hvernig er hægt að biðja yfirmanninn um að hætta, eða draga úr því, að trufla svona mikið?





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×