Nýr og endurhannaður Subaru Outback frumsýndur á morgun Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 7. maí 2021 07:02 Nýr Subaru Outback. Ný og endurhönnuð kynslóð hins vinsæla Subaru Outback verður kynntur frumsýndur hjá BL við Sævarhöfða, á morgun, laugardag, 8. maí milli kl. 12 og 16.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá BL. Hinn fjórhjóladrifni Outback, sem fór fyrst á markað árið 1995, kemur nú á alveg nýjum undirvagni (Subaru Global Platform, SGP) og með léttari og sterkari yfirbyggingu sem auka enn á öryggi bílsins í árekstrum vegna 40% meiri orkuupptöku í höggum á yfirbygginguna. Breytingarnar á bílnum hafa einnig aukið aksturseiginleikana ásamt því sem nýjungar í farþegarými bæta þægindi ökumanns og farþega. Nýr Outback hefur þegar staðist nýja MPDB árekstrarprófið hjá Euro NCAP sem kynnt var 2020 og er kröfuharðasta öryggisprófið sem Euro NCAP hefur hannað til þessa. Meira öryggi og aukin dráttargeta Nýr Outback er nú m.a. búinn uppfærðri og aflmeiri Boxervél sem hefur tveggja tonna dráttargetu. Þá er hann einnig kominn með 11,6 tommu snertiskjá með upplýsingakerfi Subaru, nýja kynslóð öryggiskerfisins EyeSight með fjölda eiginleika, þar á meðal nýja og enn fullkomnari andlitsgreiningu með víðara sjónarhorni til að greina hættur í umferðinni. Innra rými í nýjum Subaru Outback. 90% íhluta vélar og skiptingar ný hönnun Fjögurra strokka 2,5 lítra Boxervél Outback hefur verið endurhönnuð frá grunni og nú eru um 90% allra íhluta vélarinnar og Lineartronic CVT gírskiptingarinnar ný hönnun. Meðal annars hefur þjöppuhlutfallið verið aukið, gírskiptingin nær yfir breiðara svið en áður, sem leitt hefur til 22% minna orkutaps miðað við fráfarandi gerð, ásamt því sem breytingarnar hafa í för með sér aukið vélartog og þar með meiri afköst í beygjum og upp brekkur. Breytingar á fjöðrunarkerfi Einnig hafa verið gerðar breytingar á fjöðrunarkerfi Outback til að bæta aksturseiginleika og þægindi, m.a. með aukinni slaglengd fjöðrunarinnar og betri hljóðeinagrunarefnum sem viðhalda betur þægindum farþega á ójöfnum vegum og vegslóðum. Subaru Outback. Meira pláss í farþega- og farangursrými Þá er farþegarými Outback einnig rýmra en í fráfarandi gerð. Þannig hefur fjarlægð milli fram- og aftursæta verið aukið um tæpa 11 sentimetra ásamt því sem meira bil er milli framsæta. Einnig hefur farangursrýmið verið stækkað og opnunarbreidd afturhlera aukin til að bæta aðgengi auk þess sem hlerinn er nú með snertilausri og rafdrifinni opnun
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Fleiri fréttir Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Fær einn af sextíu forsetaframbjóðendum upp í bíl til sín Sjá meira