Bílar

Nissan E-NV200 - Lipurðin situr eftir

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nissan E-NV200.
Nissan E-NV200. Vilhelm Gunnarsson

E-NV200 er hreinn raf-sendibíll sem hægt er að útfæra sem tveggja-, fimm- og sjö manna bíl. Prófaður var bíll í tveggja sæta útfærslu, fagurrauður að lit.

Ofanritaður ætlar að reynsluaka rafsendibílum sem seldir eru hérlendis á næstunni og bera saman eftir að umfjöllun um þá alla hefur verið birt.

Notagildi

Sem tveggja manna sendibíll býr hann yfir 4,2 rúmmetra fraktrými. Hann rúmar tvö Euro bretti og getur borið 705 kg.

Nissan E-NV200 rafsendibíllVilhelm Gunnarsson

Bíllinn er afar þægilegur í umgengni og fraktrýmið er aðgengilegt með bæði hliðarhurðum og afturhurðum. Það er því auðvelt að komast að fraktinni. Mikilvæg virkni þegar sendibílar eru annars vegar.

Reynsluakstursbíllinn var búinn hita í sætum og í stýri. Stýrishitinn er staðalbúnaður. Slíkt er afar velkomið á köldum janúarmorgnum. Stýrishiti er ekki einungis frábær til að halda lófum ökumanns volgum heldur yljar ökumanni um hjartarætur ef haldið er, eins og skal með báðum höndum um stýrið.

Aðstaða ökumanns í Nissan E-NV200Vilhelm Gunnarsson

Aksturseiginleikar

Sætisstaðan er há og upprétt. Það gerir ökumanni og farþega auðvelt um vik að setjast inn í bílinn og stíga út úr honum. Eins hefur ökumaður góða yfirsýn yfir umferðina og situr þar sem jafningi ökumanna á jepplingum, þegar kemur að hæð yfir malbiki, nú eða möl.

Bíllinn er afar lipur, við reynsluaksturinn var að mestu ekið um götur Kópavogs. Það var góð áskorun enda mikið um hringtorg og þröngar beygjur. E-NV200 reyndist afar lipur og auðveldur í akstri. Lipurðin er það sem einna helst situr eftir.

Innra rými í Nissan E-NV200.Vilhelm Gunnarsson

Innra rými

Innréttingin er einföld og þægileg í notkun. Meðvitað eða ekki þá er hún vel nothæf í vettlingum, sem er gott. Hún er snyrtileg og virkar endingargóð, í þeim skilningi að hún er ekki svo flókin að hún sé líkleg til að bila. Skjárinn er góður og skýr.

Sætin eru fín en bíllinn mætti við armpúða, það væri afbragð ef slíkt væri hluti af staðalbúnaði.

Drægni

Uppgefin drægni samkvæmt WLTP staðlinum eru 190 km. Miðað við reynsluaksturinn er það fremur nákvæmt áætlað. Auðvitað er drægni rafbíla afar misjöfn eftir hvort um er að ræða langkeyrslu eða innanbæjar snatt. E-NV200 er líkt og allflestir rafbílar búinn búnaði sem endurhleður drifrafhlöðuna þegar hemlað er eða slegið af eftir því hvort ekið er í Drive (D) eða Battery (B).

Ef B er valið þá nægir að slá af til að hefja endurhleðslu og því nánast óþarfi að stíga mikið á hemlana í hefðbundnum akstri. Fyrir fólk sem hefur ekki ekið rafbíl með slíkum búnaði þá getur tekið smástund að venjast þessu en það kemur fljótt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×