Kia Sorento besti stóri sportjeppinn hjá What Car Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 15. janúar 2021 07:01 Fjórða kynslóð Kia Sorento er orðin margverðlaunaður bíll. Nýr Kia Sorento hefur nú bætt enn einni rósinni í hnappagatið með því að vinna til verðlaunanna Besti stóri sportjeppi ársins 2021 hjá breska bílatímaritinu What Car?
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Öskju. Kia Sorento var nýverið sæmdur hinu eftirsótta Gullna stýri í Þýskalandi í gær en það eru fjölmiðlarnir Auto Bild og Bild am Sonntag sem standa að verðlaununum. Þá var bíllinn einnig valinn Bíll ársins hjá breska tímaritinu Carbuyer. Fjórða kynslóð Kia Sorento kemur nú með þremur mismunandi orkugjöfum; sem tengiltvinnbíll (Plug-in Hybrid), tvinnbíll (Hybrid) og í dísilútfærslu. Nýr Sorento er enn rúmbetri en forveri hans og er sjö manna. Bíllinn hefur auk þess mikla dráttargetu. „Við erum mjög stolt af hinum nýja Kia Sorento og það er ánægjulegt að sjá hversu góðar viðtökur bíllinn er að fá síðan hann var frumsýndur seinni hluta síðasta árs. Nýr Sorento hefur unnið til fjölda verðlauna og nú síðast hjá hinu virta bílatímari What Car?," segir Won-Jeong Jeong, forstjóri hjá Kia Motors í Evrópu. „Viðtökur hafa verið frábærar á hinum nýja Kia Sorento, enda er þetta vel heppnaður bíll í alla staði og kaupendahópurinn traustur hér á landi. Bíllinn skarar fram úr á ýmsum sviðum og hefur Arctic Edition útfærslan með 3,5 cm. upphækkun og 32" dekkjum vakið athygli. Þá er 2,5 tonna dráttargetan að heilla marga,“ segir Þorgeir R. Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent