Veiðin byrjar á morgun Karl Lúðvíksson skrifar 31. mars 2020 11:00 Það var kuldalegt við Varmá á fyrsta veiðidegi 2019 en veiðni var samt fín. Mynd: www.svfr.is
Þá er biðin á enda hjá veiðimönnum og langþráður dagur sem markar upphaf veiðisumarsins 2020 loksins runninn upp. Veiðin hefst að venju 1. apríl svo það eru líklega margir sem eiga erfitt með að festa svefn í kvöld ef það er veiðidagur framundan. Svæðin sem opna fyrst eru vorveiðisvæðin í sjóbirting og hefur eins og síðustu ár verið mikil eftirspurn eftir dögum og færri komist að en vilja. Þar sem erlendir veiðimenn verða ekki við veiðar einhverja dagana hefur mikið verið spurt eftir lausum dögum hjá leigutökum og greinilegt að Íslendingar eru að grípa tækifærið og stökkva á þessa lausu daga. Það verður örugglega fjör við bakkana á morgun þökk sé hlýju veðri síðustu daga sem hefur brætt drjúgan part af sköflunum við bakkana en ekki alveg þó. Það er ennþá mikill snjór inn til landsins og fyrir norðan er á sumum svæðum langt í að þau verði almennilega veiðileg sökum ís á ánum. Eins og venjulega liggur straumur veiðimanna á suðurland og þá sérstaklega ársvæðin undir jökli en fyrstu fréttir af veiði detta líklega inn fyrir hádegi og það verður spennandi að heyra frá þeim sem standa vaktina.
Stangveiði Mest lesið Vond umgengni við vinsæla veiðistaði í Elliðavatni Veiði Rjúpusnafsinn ómissandi hjá mörgum Veiði Elliðaárnar: 3,5 laxar á stöng á dag Veiði Loksins 100 sm lax hjá Stefáni Veiði Fín byrjun á fyrsta degi í Hítarvatni Veiði Myndasyrpa frá Urriðadansi á Þingvöllum Veiði Of mikið veitt í Soginu Veiði Elliðavatn búið að vera gjöfult Veiði Gömul en fyndin saga af ungum veiðiþjófum Veiði Fjórtán punda urriði í Galtalæk Veiði