Matur

Sykurpúðasmákökur Lindu Ben

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Linda Ben gaf út bókina Kökur á dögunum. Matarmyndirnar tekur hún allar sjálf en myndina af Lindu tók ljósmyndarinn Íris Dögg Einarsdóttir
Linda Ben gaf út bókina Kökur á dögunum. Matarmyndirnar tekur hún allar sjálf en myndina af Lindu tók ljósmyndarinn Íris Dögg Einarsdóttir Samsett/Íris Dögg-Linda Ben

Linda Ben var að gefa út sína fyrstu uppskiptabók sem nefnist einfaldlega Kökur. Bókin er full af mörgum af vinsælustu uppskriftum matarbloggarans auk spennandi nýjunga.

Við fengum Lindu til að deila uppskrift með lesendum Vísis að sykurpúðasmákökum. Börn geta auðveldlega hjálpað við þennan skemmtilega bakstur. Uppskrift og aðferð má finna hér fyrir neðan og Linda segir að baksturinn taki um níutíu mínútur. Framkvæmdin tekur um tuttugu mínútur en svo þarf að kæla deigið í klukkustund. Kökurnar eru svo bakaðar í tólf til fjórtán mínútur.

Hráefni: 

20 til 25 kökur

  • 170 g smjör
  • 170 g púðursykur
  • 100 g sykur
  • 1 egg
  • 1 eggjarauða
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. matarsódi
  • ½ tsk. salt
  • 150 g súkkulaði
  • 6 stk. hafrakexkökur (90 g)
  • 20-25 sykurpúðar
Kápan á fyrstu bók Lindu Ben.Íris Dögg Einarsdóttir

Aðferð

  1. Þeytið smjör, púðursykur og sykur þar til létt og ljóst.
  2. Bætið egginu og eggjarauðunni út í og hrærið lengur.
  3. Blandið því næst vanilludropum saman við.
  4. Blandið saman hveiti, matarsóda og salti í annarri skál.
  5. Bætið þurrefnunum við fyrri blönduna og hrærið varlega.
  6. Saxið súkkulaðið og hafrakexið gróft niður og blandið því saman við deigið með sleikju.
  7. Notið matskeið til að skipta deiginu niður í kúlur (um 30 g).
  8. Fletjið kúlurnar út í lófanum og klemmið deiginu utan um sykurpúða án þess að loka alveg.
  9. Kælið í ísskáp í um eina klst.
  10. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C með yfir- og undirhita.
  11. Raðið kökunum á ofnplötu með góðu millibili og látið sykurpúðann snúa upp.
  12. Bakið í um 12-14 mín. eða þar til kökurnar eru fallega gullnar á lit. Flytjið kökurnar yfir á kæligrind þegar þær eru byrjaðar að stífna og leyfið þeim að kólna alveg þar.

Linda Ben heldur úti síðunni Linda Ben og svo er hún einnig með Instagram síðu undir sama nafni. 


Tengdar fréttir

Linda Ben gefur út sína fyrstu uppskriftabók

Matarbloggarinn og áhrifavaldurinn Linda Ben ætlar að bæta bók í jólabókaflóðið í ár. Linda er mikill matgæðingur en í bókinni verður áherslan á kökur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×