Atvinnulíf

Vís­bendingar um heimilis­of­beldi sem þú sem vinnu­fé­lagi ættir að vita af og hafa í huga

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Sigþrúður Guðmundsdóttir.
Sigþrúður Guðmundsdóttir. Vísir/Vilhelm

„Vinnustaðir geta verið mjög mikilvægir þegar kemur að því að hjálpa fólki af ofbeldisheimilum, hvort sem er þeim sem beitir ofbeldinu eða þeim sem fyrir því verður, „ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Þar geti stuðningur og hvatning til að stíga út úr aðstæðum skipt máli. „Það skiptir til dæmis máli fyrir þolanda að mæta skilningi þegar illa gengur, að geta fengið að fara úr vinnu til að sækja aðstoð vegna ofbeldisins, og fá hvatningu til þess,“ segir Sigþrúður. 

„Vísbendingarnar geta verið margvíslegar enda ofbeldið mismunandi og oft mjög lúmskt, segir Sigþrúður.

Í dag og í gær fjallar Atvinnulífið á Vísi um það hvort vinnustöðum komi heimilisofbeldi við en í fréttum fjölmiðla hefur komið fram að heimilisofbeldi sé að aukast á tímum kórónufaraldurs. Í kjölfar #metoo byltingarinnar brást atvinnulífið við með ýmsum aðgerðum, en nú er spurt hvort tilefni sé til að atvinnulífið hugi að málum almennt og þá ekki síst að málefnum heimilisofbeldis?

Vísbendingar fyrir samstarfsfólk

Sigþrúður segir að samstarfsfólk og vinnustaðir geti verið vakandi yfir vísbendingum ef grunur leikur á að einhver innan vinnustaðarins sé þolandi heimilisofbeldis. Sigþrúður tekur hér nokkur dæmi sem hægt er að styðjast við og þar sem Kvennaathvarfið styður við konur talar hún hér um þolendur í kvenkyni.

Sumt getur verið augljóst eins og líkamlegir áverkar, það að maki fylgi og sæki viðkomandi í vinnu og hafi eftirlit með henni, konan virðist óttast makann og til dæmis lenda í vandræðum ef hún er beðin um að vinna lengur, virðist ekki hafa aðgang að laununum sínum.Konur á ofbeldisheimilum nota oft heilbrigðisþjónustu mikið og geta verið með alls konar óútskýrða kvilla svo tíð veikindi geta verið vísbending,“ 

segir Sigþrúður.

Sigþrúður segir vinnustaði geta verið mjög mikilvægir til að sporna við heimilisofbeldi. Stuðningur og hvatning til þolenda skipti svo miklu máli.Vísir/Vilhelm

Vinnustaðurinn oft einu tengsl þolenda við samfélagið

Þá segir Sigþrúður oft mikilvægt að spyrja. 

„Svo er gott að hafa í huga að besta ráðið til að komast að einhverju er að spyrja og að rannsóknir sýna að konur sem búa við ofbeldi vilja láta spyrja sig,“ segir Sigþrúður.

Þegar fólk er spurt um ofbeldi segir Sigþrúður samt mikilvægt að með spurningunni fylgi boð um stuðning. Þá segir hún einnig að þótt rannsóknir hafi sýnt að konur vilji láta spyrja sig, breyti það því ekki að konum finnist oft erfitt að skilgreina sig sem þolendur og svari því neitandi. Þá er ráð að falast eftir því hvort þær séu hræddar heima, hafi verið meiddar eða eitthvað slíkt.

En eru einhverjir vinnustaðir umfram aðra sem ættu að íhuga það sérstaklega að innleiða aðgerðaráætlun gegn heimilisofbeldi?

Við sjáum það í Kvennaathvarfinu að oft eru vinnustaðir einu tengslin sem konur á ofbeldisheimilum hafa við samfélagið utan heimilisins,“ 

segir Sigþrúður og bætir við: „Það getur verið í tilfellum erlendra kvenna sem tengjast bara maka sínum og vinnustað en hafa ekki annað bakland en það getur líka átt við um íslenskar konur enda er einangrun oft hluti ofbeldisins.“

Þá segir hún fræðslu góða forvörn.

„Almennt held ég að það sé mjög mikilvægt að vinnustaðir bjóði upp á fræðslu um ofbeldi og hvernig bregðast megi við því, bæði ef einhver er beittur ofbeldi en líka ef fólk er að beita ofbeldi,“ segir Sigþrúður.


Tengdar fréttir

Fyrsti vinnustaðurinn til að sporna við heimilisofbeldi í Covid

ISAL hefur nú innleitt aðgerðaráætlun til að sporna við heimilisofbeldi. Aðgerðaráætlunin byggir á nokkrum leiðum til að aðstoða starfsfólk sem gætu verið þolendur heimilisofbeldis til að stíga út úr þeim aðstæðum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×