Bílar

Einn mikilvægasti bíll Aston Martin kominn í framleiðslu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Fyrsti fullkláraði Aston Martin DBX, að sjálfsögðu í hinum goðsagnakennda græna lit.
Fyrsti fullkláraði Aston Martin DBX, að sjálfsögðu í hinum goðsagnakennda græna lit.

Framleiðsla á fyrsta Aston Martin DBX kláraðist í gær og mun afhending á fyrstu eintökunum hefjast seinna í júlí. Bíllinn er einn mikilvægasti bíll í sögu Aston Martin og miklar vonir eru bundnar við sölu á DBX.

Aston Martin var bjargað frá nærri vísu gjaldþroti af hópi fjárfesta, fyrir hópnum fer kanadíski milljarðamæringurinn Lawrence Stroll. Stroll er nú stjórnarformaður Aston Martin. Vonir eru bundnar við að DBX geti snúið rekstri Aston Martin við.

Eftir að aukin fjárfesting barst hefur Aston Martin breytt framtíðarplönum síum og mun draga úr framleiðslu á sprt bílum og auka áherslu á söluvænlegri bíla.

Ný verksmiðja í St Athan í Wales var reist til þess eins að framleiða DBX. Framkvæmdir við verksmiðjuna tóku fjögur ár og hún opnaði í desember á síðasta ári. Sjá má innviði verksmiðjunnar í myndbandinu hér að ofan.

Áætlanir gera ráð fyrir því að helmingur sölu Aston Martin á næstu árum verði DBX bílar. Aston Martin hefur gefið út að þegar hafi borist 2000 pantanir sem þýðir að framleiðsla verður hið minnsta fram á næsta ár. Verksmiðjan í St Athan getur framleitt um 4000 bíla á ári.

Yfirbygging Aston Martin DBX.

DBX hefur verið í þróun síðan árið 2015 og sagði yfirhönnuður Aston Martin, Marek Reichman að DBX væri „afskaplega mikilvægur áfangi“ og „afrakstur fimm ára erfiðisvinnu allra innan fyrirtækisins“.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×