Atvinnulíf

Að biðja um aðstoð er oft áskorun fyrir stjórnendur

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er ekki veikleiki hjá stjórnendum að biðja um aðstoð.
Það er ekki veikleiki hjá stjórnendum að biðja um aðstoð. Vísir/Getty

Það kann að hljóma undarlega í eyru einhverra en sumir stjórnendur eiga erfitt með að óska eftir aðstoð samstarfsfélaga sinna. Þetta eru stjórnendurnir sem eru meðvitaðir um að starfsfólkið treystir á hann/hana í einu og öllu, viðkomandi er oft þekktur fyrir að vera fljótur til að taka ákvarðanir, hafa góða yfirsýn, vera snöggur að lesa í aðstæður eða sigta út ný tækifæri.

Þetta getur hins vegar líka verið stjórnandinn sem finnur til mikils álags vegna þess að hann upplifir sig einangraðan, þ.e. veit ekki við hvern hann getur talað eða ráðfært sig við.

David K. William skrifar fyrir Forbes, Harvard Business Review og Medium og er höfundur bókarinnar The 7 Non-Negotiables of Winning from Wiley and sons. William hefur skrifað um þá áskorun sem það oft reynist vera fyrir stjórnendur að biðja um aðstoð. Hann leitaði til nokkurra álitsgjafa sem gefa stjórnendum eftirfarandi ráð.

Meiri helgun starfsmanna

Það hafa flestir heyrt að eitt af því besta sem hver stjórnandi gerir er að ráða til sín fólk sem er færari en viðkomandi sjálfur á einhverjum sviðum. Ýmsar greinar eru til um þetta og oft er heimsþekkt forystufólk nefnt í þessu samhengi, s.s. Bill Gates, Mark Zuckerberg, Jeff Bezos og Oprah Winfrey. Allt eru þetta leiðtogar sem leggja áherslu á að raða í kringum sig fólk sem býr yfir styrkleikum umfram þau sjálf.

En að leita til og ráðfæra sig við starfsfólk gerir annað og meir en að virkja rökræður við ákvarðanatökur. Starfsfólk tengist betur vinnustaðnum sínum, upplifir sinn eiginn verðleika betur og finnst það góð tilfinning að sjá og heyra að yfirmaður þeirra viðurkennir að auðvitað viti hann/hún ekki allt best og jafnvel lítið í einhverjum tilfellum.

Virði starfsfólks viðurkennt

Þegar stjórnandi leitar til starfsmanna eftir ráðum, svörum eða annarri þátttöku á starfsfólk auðveldara með að upplifa það í starfi að það sé metið að verðleikum. Þegar stjórnandi leitar til starfsfólks virkar það oft mjög hvetjandi fyrir starfsfólk og eykur kappsemina hjá fólki almennt að vilja gera eins vel og það mögulega getur.

Fljúgum hærra

Já og síðast en ekki síst má segja að fyrirtæki og samstarfsteymi séu líklegri til að setja stefnuna enn hærra en annars því það að finna hvernig þeim er treyst fyrir verkefnum er hvetjandi á svo jákvæðan og kappsaman hátt, allur eldmóður eykst.

Fyrir vikið eykur stjórnandinn líkurnar á því að fyrirtækið nái lengra en björtustu vonir stóðu til um.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×