Matur

Einfaldar en ómótstæðilegar súkkulaðibitakökur

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
instagram
Mynd/Eva Laufey Kjaran

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir sýnir reglulega frá bakstri og eldamennsku á Instagram og er þar með yfir 28 þúsund fylgjendur. Um helgina ákvað hún að fá fólk með sér í bakstur og birti uppskriftina deginum áður án þess að taka fram hvað hún ætlaði að baka. Næsta dag bakaði hún svo í beinni á Instagram og fjöldi fólks á öllum aldri tók þátt á eigin heimili.

Leyniuppskriftin reyndist vera ómótstæðilegar súkkulaðibitakökur. Eva Laufey segir að hún hafi fengið yfir 60 myndir sendar af afrakstri annarra bakara. Það gladdi hana alveg sérstaklega mikið hvað hún fékk margar myndir af börnum að baka kökurnar. Uppskriftina má finna hér fyrir neðan en áhugasamir geta skoðað aðferðina á Instagram síðu Evu.

Myndir/Eva Laufey Kjaran

Súkkulaðibitakökur

Hráefnin:

140 g púðursykur

200 g sykur

200 g smjör, við stofuhita

2 egg

2 tsk vanilludropar eða sykur

375 g hveiti

1/2 tsk lyftiduft

1 tsk matarsódi

salt á hnífsoddi

150 g rjómasúkkulaðidropar

150 g suðusúkkulaðidropar

Mynd/Eva Laufey Kjaran

Aðferð:

Þeytið saman sykur og smjör þar til blandan er létt í sér.

Bætið eggjum saman við, einu í einu og þeytið vel á milli.

Blandið þurrefnum og vanillu út í og hrærið áfram, gott að skafa meðfram hliðum amk einu sinni.

Í lokin blandið þið súkkulaðinu saman við.

Gott að kæla deigið í klst. (það má samt sem áður baka strax en lögunin á kökunum verður betri ef deigið fær aðeins að kólna)

Forhitið ofninn í 180°C.

Mótið kúlur með höndunum og setjið á pappírsklædda ofnplötu.

Bakið við 180°C í 12 mínútur.

Kökurnar eru fremur mjúkar eftir þann tíma og því gott að leyfa þeim að kólna á plötunni í rólegheitum.

Berið strax fram og njótið!

Það er frábært að skipta deiginu í helminga, baka helminginn og frysta hinn! Kökulöngunin getur komið upp hvenær sem er og því gott að eiga kökudeig í frystinum.

Eva Laufey segir að það sé frábært að skipta deiginu í helminga, baka helminginn og frysta hinn! 

Kökulöngunin getur komið upp hvenær sem er og því gott að eiga kökudeig í frystinum.

Tengdar fréttir

Tillögur að páskamatnum frá Evu Laufey

Matgæðingurinn og þáttastjórnandinn Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur tekið saman nokkrar uppskriftir sem væri tilvalið að prófa yfir páskahelgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×