Heimurinn stendur frammi fyrir umfangsmeiri ógnum en áður hafa þekkst Heimsljós kynnir 15. maí 2019 16:15 Ljósmynd frá Tansaníu. UNDRR
Heimurinn stendur frammi fyrir áður óþekktum ógnum, sem eru bæði nær okkur í tíma og umfangsmeiri en áður hafa þekkst og tengjast breytingum á loftslagi og hnignun umhverfis, segir í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum sem kom út í dag. Þar segir líka að líkurnar á því að eitt hörmungarástand leiði til annarra fari vaxandi. Skýrslan nefnist The Global Assessment Report 2019 (GAR 2019) og kemur út annað hvort ár. Skýrslan er gefin út af sérstakri skrifstofu Sameinuðu þjóðanna sem hefur það hlutverk að gefa út áhættumat fyrir líf á jörðinni, allt frá loftmengun til líffræðilegra ógna, þar með talda jarðskjálfta, þurrka og loftslagsbreytinga. „Öfgafullar breytingar á jörðinni og félagsfræðilegum kerfum eru að gerast í nútímanum. Við búum ekki lengur við þann munað að geta frestað. Ef við höldum áfram að lifa með þessum hætti og umgöngumst hvort annað og jörðina eins og við höfum gert, þá er sjálf tilvera okkar í húfi,“ segir Mami Mizutori sérlegur fulltrúi aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna á þessu sviði. Í skýrslunni kemur fram að grípi ríkisstjórnir ekki til viðeigandi aðgerða geti þessar ógnir hægt á framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna eða jafnvel breytt þeim andhverfu sína, einkum þeim sem snúa að fátækt og hungri og aðgerðum vegna loftslagsbreytinga. „Mannkynið hefur aldrei áður staðið frammi fyrir jafn umfangsmiklum og flóknum ógnum,“ sagði Mizutori þegar skýrslan var kynnt í London í dag.Nánar á vef UNISDRÞessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Stúlkan er fundin Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent