Spennandi samstarfsmöguleikar fyrir atvinnulíf í þróunarsamvinnu Heimsljós kynnir 23. nóvember 2018 12:30 „
Samstarfssjóðnum er ætlað að skapa ný tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf með styrkjum í tengslum við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og þróunarsamvinnu. Þátttaka atvinnulífsins í uppbyggingu í þróunarríkjunum er lykilatriði ef við ætlum okkar að ná Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra en utanríkisráðuneytið auglýsir nú í fyrsta sinn eftir umsóknum um styrki sem veittir eru úr nýjum Samstarfssjóði við atvinnulíf um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum. Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu. Markmiðið er að draga úr fátækt og styðja við atvinnusköpun og sjálfbæran vöxt í fátækum ríkjum heims í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Til úthlutunar að þessu sinni eru allt að 100 milljónir króna. „Hefur fyrirtæki þitt áhuga á að leggja sitt af mörkum til að ná Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og á sama tíma sækjast eftir nýjum viðskiptatækifærum og aukinni samkeppnishæfni? Samstarfssjóðurinn skapar ný tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf,“ segir í auglýsingu sem ráðuneytið birtir á morgun í Fréttablaðinu. Framlög verða veitt til samstarfsverkefna sem framkvæmd verða í lágtekju- og lágmillitekjurríkjum, samkvæmt lista Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (DAC) um viðtökulönd opinberrar þróunaraðstoðar. Styrkt verkefni skulu vera til hagsbóta í viðkomandi landi og stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum vexti í fátækum ríkjum heims.Umsóknir þurfa að vera frá skráðum fyrirtækjumSjóðurinn er opinn fyrir umsóknum frá skráðum fyrirtækjum en fleiri samstarfsaðilar geta komið að verkefnum. Mat á umsóknum byggist á gæðaviðmiðum sem er að finna á vef ráðuneytisins. Eins og áður segir eru allt að 100 milljónir til úthlutunar úr sjóðnum en hámarksfjárhæð til einstakra verkefna er allt að 200 þúsund evrur yfir þriggja ára tímabil. Heimilt er að veita styrk til sama verkefnis til allt að þriggja ára og styrkfjárhæð getur numið allt að 50% af heildarkostnaði verkefnis. Umsóknir þurfa að berast fyrir kl. 16:00 21. desember 2018 í netfangið atvinnulif.styrkir@utn.stjr.is. Utanríkisráðherra úthlutar styrkjum að fengnu áliti þriggja manna matshóps sem skipaður er tveimur óháðum sérfræðingum á sviði þróunarsamvinnu og fulltrúa utanríkisráðuneytisins. Áætlað er að niðurstöður ráðherra liggi fyrir í lok janúar 2019. Fyrirspurnir um sjóðinn skal senda á netfangið atvinnulif.styrkir@utn.stjr.is. Frestur til að senda inn fyrirspurnir er til og með 18. desember. Öllum spurningum verður svarað hér. Auk Samstarfssjóðsins við atvinnulífið leggur utanríkisráðuneytið áherslu á öflugt samstarf við félagasamtök með aukinni áherslu á þá möguleika sem felast í samvinnu við félagasamtök sem tengjast atvinnulífinu og samstarfi félagasamtaka við fyrirtæki um tiltekin verkefni.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Sameinuðu þjóðirnar Þróunarsamvinna Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður