Jól

Skammdegið kallar á aukinn yl

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar
Sigrún nýtur aðventunnar við kósíheit.
Sigrún nýtur aðventunnar við kósíheit. Mynd/Laufey Elíasdótir

Sigrún Norðdahl keramikhönnuður er tilraunaglaður matgæðingur. Hún nýtur aðventunnar við bakstur og kósíheit milli þess sem hún stendur vaktina bak við búðarborð í miðbænum. Nýjasta tilraunin í eldhúsinu er rjúkandi kaffi með jólasnúningi.

"Það eru ekki margar fastar hefðir í kringum mig en nokkrar sem mér þykir sérstaklega vænt um eins og að skera út piparkökur og að borða Þorláksmessu­hangikjötið með fjölskyldunni. Það sem mér finnst alveg ómissandi á jólunum er að eiga samverustundir með fólkinu í kringum mig. Möndlugrautsafgangur með góðum kaffibolla í morgunmat á jóladag er líka alveg ómissandi,“ segir Sigrún Norðdahl, keramikhönnuður og matgæðingur. Hún segist þrátt fyrir hefðirnar annars vera óhrædd við að gera tilraunir með hátíðamatinn og á borðum á aðfangadagskvöld er aldrei alveg það sama milli ára sérstaklega þegar kemur að meðlætinu. Smákökubakstur sé hennar helsta skemmtun á aðventunni.

„Við fjölskyldan erum einstaklega tilraunaglöð í eldhúsinu. Það er skemmtilegast, enda á maður bara að hafa svolítið gaman af þessu. Mér finnst mjög gaman að baka og bardúsa og síðustu ár hefur skapast hjá mér hefð fyrir því að baka hesli­hnetusmákökur sem heita Baci di dama og súkkulaðibitakökur með sjávarsalti. Annað fer mikið eftir því hvaða tíma ég hef en ég rek Kaolin gallerý á Skólavörðustíg og hluti af aðventuhefðinni hjá mér er því að standa bak við búðarborðið og aðstoða fólk við að velja fallegt keramik í jólapakkana. En mjög oft er ég að gera tilraunir með eitthvað nýtt ef þannig liggur á mér,“ segir Sigrún.

„Drykkirnir sem ég gef uppskrift að eru í grunninn mjög hefðbundnir en mér finnst þessi árstími kalla á smá aukinn yl og þar kemur kryddið til hjálpar. Í kaffidrykknum er ég að leika mér með írskt kaffi en í stað þess að setja viskí í kaffið fer smá af því í rjómann. Kryddið í súkkulaðidrykknum finnst mér einstaklega hjartavermandi. Það er mjög fljótlegt að skella þessum drykkjum saman, ég nota uppáhellt kaffi og samsetningin er síðan rétt eins og að skella sykurmola og mjólkurtári út í hvern bolla. Þeir sem vilja geta sett smá vískídreitil út í kaffið. Svo er bara að bjóða einhverjum í jólakaffi og njóta samverunnar." 

Jólabirta með engifer og anís er hlýlegur drykkur að ylja sér við á aðventunni.

Jólarökkur

  • 100 g súkkulaði
  • 2 cm bútur af engifer
  • ½ tsk. kanill
  • Hnífsoddur af salti
  • 750 ml mjólk
  • Þeyttur rjómi
  • Rifinn appelsínubörkur

Setjið allt saman í pott og hitið í rólegheitunum, hellið yfir í könnu og haldið engiferinu frá. Setjið þeyttan rjóma yfir og appelsínubörk.

„Í kaffidrykknum er ég að leika mér aðeins með írskt kaffi en í stað þess að setja viskí í kaffið fer smá af því í rjómann.“

Jólabirta

  • 200 ml uppáhellt kaffi, t.d. í pressukönnu, Aeropress eða klassíska uppáhellingu
  • 1 msk. hrásykur eða annar dökkur sykur
  • 1 cm bútur af engifer, saxaður niður
  • 1 anísstjarna
  • ½ appelsínusneið
  • 50 ml rjómi
  • 1 tsk. viskí

Lagið kaffi og hellið saman við engifer, anís og sykur, hrærið í til þess að leysa upp sykurinn. Setjið rjómann og viskíið í kokteilhristara og hristið vel saman þangað til rjóminn hefur þykknað aðeins. Setjið hálfa appelsínusneið í glas og hellið kaffinu yfir en haldið engiferinu og anísstjörnunni eftir. Hellið rjómanum varlega yfir.








×