Vanmetinn efnahagsbati Abes Lars Christensen skrifar 16. ágúst 2017 07:00 Ótrúlegt en satt – í Japan er nú meiri hagvöxtur en í Bandaríkjunum, á evrusvæðinu og Bretlandi. Á mánudaginn voru birtar upplýsingar um raunvöxt vergrar landsframleiðslu í Japan á öðrum ársfjórðungi. Hagvöxtur í Japan var 4% á ársgrundvelli. Maður verður auðvitað að fara varlega í að lesa of mikið út úr einni tölu, og verg landsframleiðsla er alræmd fyrir óstöðugleika, en heildarmyndin af sterkum efnahagsbata – kannski jafnvel uppsveiflu samkvæmt sumum viðmiðum – er nokkuð skýr. Með öðrum orðum er erfitt annað en að álykta sem svo að Shinzo Abe forsætisráðherra hafi staðið við loforð sín um að koma japanska hagkerfinu út úr verðhjöðnunargildrunni sem það var fast í fyrir aðeins nokkrum árum. „Abenomics“, eins og efnahagsstefna Abes hefur verið kölluð, virkar. Nú sjáum við bæði fyrir endann á verðhjöðnuninni og það sem lítur út fyrir að vera viðvarandi aukning á hagvexti. Svo hvað er í gangi? Á einfaldaðan hátt má segja að það séu sérstaklega tveir þættir sem þessi árin hjálpa Japan út úr lágvaxtagildrunni. Í fyrsta lagi eru konur að koma í auknum mæli út á vinnumarkaðinn. Og það eru ekki, eins og við sáum á Norðurlöndum á 8. og 9. áratugnum, ungu konurnar heldur eru það miðaldra konur sem eru að koma inn á vinnumarkaðinn. Þegar Abe varð forsætisráðherra 2012 voru 55 prósent kvenna á aldrinum 55 til 64 ára á vinnumarkaðnum. Nú hefur sú tala hækkað í 65 prósent og þetta er drifkrafturinn sem er að binda enda á neikvæðu lýðfræðilegu tilhneiginguna sem við höfðum séð á japanska vinnumarkaðnum í næstum þrjá áratugi, og þetta ýtir undir hagvöxt. Það eru mismunandi ástæður fyrir þessari breytingu. Ein sú mikilvægasta er að eftirspurn eftir vinnuafli hefur aukist hratt í Japan þessi árin í kjölfar verulegrar tilslökunar á peningamálastefnunni. Og peningamálastefnan er önnur mjög mikilvæg ástæða fyrir efnahagslegum árangri Abes. Þess vegna væri hægt að halda því fram að hér sé ekki um neitt „Abenomics“ að ræða heldur „Kurodanomics“, nefnt eftir seðlabankastjóra Japans, Haruchiko Kuroda, sem Shinozo Abe skipaði 2013 með það skýra markmið að koma Japan út úr verðhjöðnuninni. Og það hefur honum tekist – að minnsta kosti að hluta til. Kuroda hefur tekið upp tvö prósent verðbólgumarkmið og ágenga peningamálastefnu með svokallaðri magnbundinni íhlutun. Japan er ekki enn komið upp í tveggja prósenta verðbólgu en nálgast það og virðist vera að færast varanlega út úr verðhjöðnuninni. Þetta þýðir að Japanar hafa aftur öðlast trú á framtíðina og hagvöxtur hefur tekið við sér. Og með meiri hagvexti eykst eftirspurn eftir vinnuafli. Reyndar eru nú fleiri laus störf en umsækjendur í japanska hagkerfinu. Og það er eitt af því sem laðar konur – og sérstaklega miðaldra konur – inn á vinnumarkaðinn. Svo það má vera að Abe forsætisráðherra þurfi að takast á við pólitískar áskoranir núna en efnahagsstefna hans hefur heppnast vel. Hann ætti að þakka japönskum konum og Kuroda fyrir það.Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Lars Christensen Mest lesið ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun