Sigur í augsýn eftir baráttu í áratugi Sveinn Arnarsson skrifar 25. febrúar 2017 06:00 Erla Bolladóttir og aðstandendur bíða eftir því að starfshópur innanríkisráðherra, undir forystu Arndísar Soffíu Sigurðardóttur, kynni niðurstöður sínar. vísir/gva
Dómur í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum féll í Hæstarétti árið 1980. Sævar Ciesielski var dæmdur í sautján ára fangelsi, Kristján Viðar Viðarsson var dæmdur í sextán ára fangelsi, Tryggvi Rúnar Leifsson var dæmdur i 13 ára fangelsi, Guðjón Skarphéðinsson í tíu ára fangelsi og Erla Bolladóttir var dæmd í þriggja ára fangelsi. Að afplánun lokinni fór Sævar tvisvar fram á endurupptöku en var synjað. Í fyrra skiptið í árið 1994 en í seinna skiptið árið 1999. Þá fór Erla Bolladóttir fram á endurupptöku árið 2000 sem var ekki heldur fallist á. Kaflaskil urðu í málinu árið 2011 þegar Ögmundur Jónasson, þáverandi innanríkisráðherra, skipaði starfshóp til þess að fjalla um Guðmundar- og Geirfinnsmálin eftir að birt voru ný gögn í Íslandi í dag á Stöð 2. Þessar nýju upplýsingar voru dagbókafærslur Tryggva Rúnars og sjónvarpsviðtal við Gísla Guðjónsson réttarsálfræðing. „Það sem er sláandi við þessar dagbækur, þó þær fari ekki eins langt aftur í tímann eins og æskilegt væri til að gefa okkur mynd af yfirheyrslum og upphafi rannsóknar málsins, þá er greinilegt að hann talar eins og saklaus maður,“ sagði Gísli um dagbækurnar. Tók hann jafnframt fram að það væri tímabært að hefja rannsókn málsins að nýju. Hópurinn hóf síðan störf í lok október 2011 og var áætlað að skila áfangaskýrslu undir lok apríl ári seinna. Það reyndist ekki unnt en þess í stað skilaði hópurinn stöðuskýrslu um vinnu hópsins til ráðherra og óskaði jafnframt eftir fresti til að skila áfangaskýrslu. Starfshópnum var veittur frestur til 1. nóvember 2012 og aftur til 15. febrúar 2013 en tæplega fimm hundruð blaðsíðna skýrslu starfshópsins var loks skilað í seinni hluta mars 2013.Arndís Soffía Sigurðardóttir kynnir niðurstöður starfshóps innanríkisráðuneytisins.vísir/gvaNiðurstaða sálfræðilegs mats þeirra Gísla Guðjónssonar og Jóns Friðriks Sigurðssonar, sem birt var í skýrslunni, var að hafið væri yfir allan skynsamlegan vafa að framburður og játningar Erlu Bolladóttur, Sævars Ciesielskis, Kristjáns Viðars Viðarssonar, Tryggva Rúnars Leifssonar, Alberts Klahn Skaftasonar og Guðjóns Skarphéðinssonar í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum voru óáreiðanlegar. Eftir að niðurstaða nefndarinnar var gerð opinber var krafist endurupptöku málsins. Ragnar Aðalsteinsson, sem krafðist endurupptöku fyrir Erlu Bolladóttur og Guðjón Skarphéðinsson, sagði ekkert mál af þessari stærðargráðu hafa farið fyrir endurupptökunefnd til þessa. „Við erum að tala um gríðarlegt skjalamagn, þúsundir og aftur þúsundir blaðsíðna,“ sagði Ragnar. Málið tafðist þegar ríkissaksóknari, sem bar að veita endurupptökunefnd umsögn um kröfuna, lýsti sig vanhæfan vegna tengsla við einn af rannsakendum málsins. Davíð Þór Björgvinsson var svo settur ríkissaksóknari í málinu í október 2014 og skilaði umsögn í júní 2015. Í júní 2016 dró svo til tíðinda þegar greint var frá því að tveir menn hefðu verið handteknir í tengslum við morðið á Guðmundi Einarssyni. Endurupptökunefnd þótti tilefni til að mennirnir yrðu yfirheyrður vegna nýs vitnisburðar i málinu. Var gerð húsleit hjá sambýliskonu annars mannsins í tengslum við handtökurnar. Handtökurnar voru byggðar á nýjum vitnisburði sem embætti sérstaks saksóknara hafði undir höndum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Furða sig á að starfsfólkið þegi ennþá Innlent Banaslys á Vesturlandsvegi í Borgarfirði Innlent „Fjögur slösuðust í hörðum árekstri“ Innlent Loksins kominn heim eftir slysið á Íslandi sem umturnaði lífi hans Innlent Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Erlent Lést af náttúrulegum orsökum Erlent Fullyrða að gíslar hafi fundist í haldi blaðamanns Erlent Vestmanneyjabær mótmælir efnisvinnslu Heidelberg við Landeyjahöfn Innlent Reglur um samskipti við fjölmiðla ekki tilraun til þöggunar Innlent Ekki óeðlilegt að líta til þess að byggja hverfi á öðrum stöðum Innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi veiðistjórnunar Segir magnafslátt á umhverfissóðaskap skelfilega hugmynd Nefnir legókeppni sem mögulegt ráð við vanda drengja Unnið á spítalanum lengi en óttast ekki hagsmunaárekstra Úr sex nöfnum að velja á nýjasta sveitarfélag landsins Reglur um samskipti við fjölmiðla ekki tilraun til þöggunar Krefur úrskurðarnefnd upplýsingamála um upplýsingar Líta fjölda látinna í umferðinni alvarlegum augum Almannahagsmunir að slíkar upplýsingar séu opinberar Hófu frumkvæðisathugun á netsölu áfengis í morgun Loksins kominn heim eftir slysið á Íslandi sem umturnaði lífi hans Fjósalykt leggst yfir Seyðisfjörð Þrjár íkveikjur í sinu með jöfnu millibili Áhyggjurnar enn til staðar og engin trygging „Fjögur slösuðust í hörðum árekstri“ Fólkið sem er talið hafa brotið á Maltverjanum látið laust Kvöldfréttir RÚV færðar til klukkan níu í sumar Þrír liggja undir grun en eru líklegast komnir úr landi Vopnakaup samræmist stefnu þrátt fyrir gagnrýni varaformannsins Banaslys á Vesturlandsvegi í Borgarfirði Willum vill pakka tóbaki í ljótasta lit í heimi Gróðureldar villa um fyrir Veðurstofunni Ekki óeðlilegt að líta til þess að byggja hverfi á öðrum stöðum Furða sig á að starfsfólkið þegi ennþá Vestmanneyjabær mótmælir efnisvinnslu Heidelberg við Landeyjahöfn Tveir fluttir á sjúkrahús: Þriðja útkallið á einum sólarhring Iðnaðarnjósnir raunveruleg ógn við íslensk fyrirtæki Ungt burðardýr hlaut vægari dóm í Landsrétti Pönnukökumeistari með kaffi í pönnukökunum Lögregluaðgerðir á nokkrum stöðum í tengslum við vændisrannsókn Sjá meira