Bílabúð Benna frumsýnir Tivoli XLV Finnur Thorlacius skrifar 6. janúar 2017 09:26 SsangYoung Tivoli XLV
Undanfarin ár hefur framleiðslan frá SsangYong, Tivoli, Korando og Rexton, notið vaxandi velgengni í kröfuhörðum flokki jeppa og sportjeppa. Nýlega gerðu SsangYong verksmiðjurnar opinberar sölutölur sínar fyrir árið 2016, sem sýna að söluaukningin hefur slegið öll met og nemur tæpum 8% frá fyrra ári. Að sögn Benedikts Eyjólfssonar hjá Bílabúð Benna, umboðsaðila SsangYong á Íslandi, hafa SsangYong jeppar og sportjeppar komið sífellt sterkari inn hjá íslenskum bílakaupendum. „Nýjasti smellurinn frá þeim, sportjeppinn Tivoli, var kynntur til sögunnar hjá okkur á síðasta ári og vaxandi velgengni SsangYong á alþjóðavísu má m.a. merkja á að hann tryggði sér sæti á lista yfir bíla sem tilnefndir voru til nafnbótarinnar Bíll ársins 2017. Nýjasta útspilið frá SsangYong heitir Tivoli XLV og við erum gríðarlega ánægð með hann. Hann sver sig í ættina og er virkilega vel útbúinn, extra langur, einstaklega fjölhæfur og að sjálfsögðu fjórhjóladrifinn eins og allir hinir SsangYong bræður hans. Við fullyrðum hiklaust að hann sé með staðalbúnað sem er aðeins fáanlegur í mun dýrari sportjeppum,“ segir Benedikt. Tivoli XLV verður frumsýndur núna á laugardaginn 7. janúar, á þremur stöðum, hjá Bílabúð Benna í Tangarhöfðanum, hjá Bílaríki Akureyri og hjá Bílabúð Benna á Njarðarbraut í Reykjanesbæ. Opið verður á milli kl. 12 og 16 á laugardeginum og allir eru hjartanlega velkomnir.
Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent