Stóra prófið Frosti Logason skrifar 28. júlí 2016 06:00 Guðinn sem við trúum á er persónulegur. Hann er lifandi vera og vinur okkar. Í rauninni er hann ósýnileg persóna sem umlykur okkur í daglegu amstri. Hann er algóður, almáttugur og svo mikilfenglegur að við getum mjög tæplega skilið hann. Þess vegna eru svona margir vitleysingar í Siðmennt og Vantrú. Þeir skilja ekki Guð. Hann skapaði alheiminn og allt sem í honum er. Af allri þessari sköpun sinni ákvað hann að eiga í nánu sambandi við einungis eina tegund prímata. Þar vorum við heppin. Guð er ofboðslega upptekinn og hann hefur að mörgu að huga. Á hverjum degi sinnir hann ekki aðeins allri jörðinni heldur einnig öllum sólkerfunum, stjörnuþokunum og alheimunum sem við þekkjum ekki einu sinni. Þrátt fyrir þetta mikla annríki er honum mjög umhugað um það sem við erum að gera í okkar daglega lífi. Sérstaklega þegar við erum nakin í svefnherbergjum okkar. Öllum ætti að vera alveg ljóst að Guði er illa við samkynhneigð. Talsmenn hans hér í forréttindaríkjum Vesturlanda hafa áttað sig á að sú afstaða er ekki vinsæl. Almannatenglar eru fengnir til þess að færa fókusinn annað. Núna er Guð kominn í flóttamannahjálpina. Alheimurinn sem Guð skapaði fyrir okkur er í raun og veru ein risastór tilraunastofa þar sem við mannfólkið erum aðal viðfangsefnið. Þar er í raun verið að rannsaka hvort mannskepnan sé fáanleg til að trúa á Guð án þess að fá fyrir því nokkrar sannanir. Það er stóra prófið. Ef við stöndumst það hljótum við að launum eilíft líf og botnlausa hamingju eftir dauðann. Þetta er auðvitað samningur sem barnalegt er að hafna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frosti Logason Mest lesið Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun