Strax í framleiðslu næstu þáttaraðar Finnur Thorlacius skrifar 31. október 2016 15:01
Þeir fyrrum Top Gear menn, Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May munu strax hefjast handa við gerð næstu þáttaraðar í kjölfar sýningar á þeirri fyrstu, sem hefst þann 18. nóvember á Amazon Prime. Fyrsta þáttaröðin er 12 þættir og um klukkutími hver þáttur og í meðfylgjandi myndskeiði kemur fram að í nýju þáttunum séu áhorfendur með í tökum, þó ekki á sama hátt og í fyrri Tiop Gear þáttum þar sem þeir voru í stóru stúdíói, heldur verða þeir í stóru tjaldi sem flutt er á milli staða. Hver þáttur af þeim nýju gerast á 12 mismunandi stöðum í fjölmörgum löndum. Aðspurður segir Jeremy Clarkson að nýju þættirnir séu um margt líkir þeim eldri, bara ekki með sömu “afskiptasömu” starfsmönnum BBC. Þó megi bæta við að í sumum þáttanna séu bílar í aðalhlutverki, en í öðrum þeirra eru bílar alls ekki í aðalhlutverki. Nú eru innan við 3 vikur í sýningu fyrsta þáttar í nýju þáttaröðinni sem ber nafnið “The Grand Tour” og fátt annað hægt en hlakka til.Inni í tjaldinu sem flutt er á milli tökustaða.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent