Volvo S60 með 450 hestafla vél Finnur Thorlacius skrifar 3. mars 2015 12:45 Volvo S60 bílinn sem fengið hefur yfirhalningu frá Polestar.
Polestar er þekkt fyrir að ná ótrúlegu afli úr Volvo vélum og enn á ný hafa þeir sett nýja mælistiku með því að kreista út 450 hestöfl úr 2,0 lítra og fjögurra strokka bensínvél Volvo. Það ætti að hræða suma af þýsku lúxusbílaframleiðendunum. Víst er að enn er háð hestaflastríð milli þeirra og Volvo tekur þátt í því með hjálp breytingafyrirtækisins Polestar. Sumum þótti nóg um þegar Polestar náði 350 hestöflum úr sex strokka vél í Volvo V60. Þá notaðist Polestar við gamla vél og tækni. Öllu magnaðri er árangur þeirra með þessa litlu vél nú. Með henni slær Polestar við AMG hluta Mercedes Benz sem náði 360 hestöflum úr sömu stærð vélar fyrir Mercedes Benz CLA45 AMG bílinn og þótti mörgum þó nóg um þar.Tvær forþjöppur og keflablásariPolestar notast við tvær forþjöppur frá Borg Warner og snúast þær allt að 200.000 snúninga á hverri mínútu. Auk þess er keflablásari tengdur vélinni sem snýst á 70.000 snúninga hraða á mínútu. Bensíndælan í bílnum vinnur undir 50 psi þrýstingi sem eru svo tengdir við stórar bensínþrýstidælur með 3.625 psi þrýstingi. Segja má því að allt sé afar háþrýst undir vélarhlífinni. Sumir myndu halda að þetta væri ávísun á bilanir en því eru þeir Polestar menn ekki sammála. Þessi Volvo S60 bíll er eðlilega með breytta og stífari fjöðrun, öðruvísi stýringu og breiðari dekk.
Mest lesið Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Innlent Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Innlent PAP vann stórsigur í Singapúr Erlent „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Innlent Maður sem lét snáka bíta sig 200 sinnum lykill að tímamótamóteitri Erlent „Vona að þú sofir vel“ Innlent Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Erlent Birti mynd af sér í páfaskrúða Erlent Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Innlent „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ Innlent