Hyundai i20 hlýtur hönnunarverðlaun Finnur Thorlacius skrifar 6. febrúar 2015 10:54 Hyundai i20
Hyundai verður í lok mánaðarins veitt alþjóðleg hönnunarverðlaun iF Design í flokki lítilla fólskbíla fyrir framúrskarandi innri og ytri hönnun og búnað Hyundai i20 bílsins. Þetta er annað árið í röð sem iF Design verðlaunar Hyundai fyrir hönnun hinnar nýju kynslóðar fólksbíla fyrirtækisins. Í ár verða verðlaunin veitt við hátíðlega athöfn að kvöldi 27. febrúar nk. Í niðurstöðum dómnefndar um i20 segir að ytra útlit bílsins einkennist af réttum hlutföllum og góðu samræmi, þar sem útlínur framendans í grilli, ljósum og vélarhlíf kalli fram þróttmikinn svip ásamt flæðandi þaklínum sem svartir hliðarlistarnir ramma vel inn. Farþegarýmið þykir sérlega vel heppnað vegna miðlægra stjórntækja fyrir ökumann, mjúkrar efnisáferðar í innréttingu og nýtískulegrar og fallegrar hönnunar í mælaborði og miðjustokki. Verðlaunin eru mikil viðurkenning fyrir hönnunardeild Hyundai í Evrópu þar sem stílhreinar og flæðandi línur leika aðalhlutverk ásamt skörpum og svipmiklum útlínum sem gera að verkum að ekki fer á milli mála um hvaða bíltegund er að ræða.iF Design Verðlaun iF Design eru alþjóðlega viðurkennd og eftirsótt hönnunarverðlaun sem veitt hafa verið frá árinu 1953. Fá þeir framleiðendur verðlaunin sem þykja skara fram úr í hvers konar hönnun í fjölmörgum greinum og flokkum eins og sjá má á heimasíðunni ifdesign.de. Hjá iF International Forum Design GmbH í Þýskalandi starfa margar dómnefndir við mat á framúrskarandi hönnun aðila um allan heim.Hyundai Motor Hyundai Motor, eigandi Hyundai Motor Company, var stofnað árið 1967 í Suður Kóreu. Fyrirtækið rekur víðtæka starfsemi á fjölmörgum sviðum, m.a. námufyrirtæki á sviði málmvinnslu sem gerir því kleift að vinna hráefni allt frá námu til tilbúinna vara á borð við Hyundai bíla. Hyundai starfrækir átta verksmiðjur og sjö hönnunar- og tækniþróunarfyrirtæki víða um heim og seldi framleiðandinn tæplega 4,7 milljónir bíla á síðasta ári. Hjá fyrirtækinu starfa um eitt hundrað þúsund manns á starfssvöðum um allan heim.
Mest lesið Ætlaði ekki að trúa því að sonurinn hefði sjálfur staðið upp úr bílnum Innlent Norðmenn uggandi vegna mögulegra viðbragða Trump Erlent Grínaðist með Möggu Stínu: „Fyrsta líflátshótunin kom 18 mínútum seinna“ Innlent Tókst ekki að sanna að Brim bæri ábyrgð á dauða sonar þeirra Innlent Nóbelsnefndin hafi valið pólitík fram yfir frið Erlent Venesúelskur stjórnarandstæðingur hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Magga Stína í flugi á leið til Istanbúl Innlent Þarf að endurgreiða móður vegna ofrukkunar í forræðismáli Innlent Fjöldi látinn eftir að verksmiðja sprakk í loft upp Innlent Gummi reiður: „Kominn tími til að þeir sem ráða opni augun“ Innlent