Raunveruleikarof Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 23. júní 2015 00:00 Það er oftar en ekki góð lexía í absúrdisma að hlýða á stjórnmálamenn útskýra lélegt fylgi sitt og flokka sinna. Þannig eru allir sigurvegarar á kosninganótt, jafnvel sá formaður sem hefur beðið algjört skipbrot með flokk sinn er borginmannlegur og tekst að finna einhverja leið til að útskýra af hverju þetta sé í raun besta mögulega niðurstaðan, eða í það minnsta varnarsigur. Hvort sem það er gott fylgi hjá örvhentum túbuleikurum í Grafarvogi, eða að tekist hafi að koma í veg fyrir að flokkur þurrkist út; alltaf er einhver leið fundin til að fegra stöðuna. Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefur nú setið í tvö ár. Kjörtímabilið er hálfnað og því á stjórnin tvö ár eftir á valdastóli, gangi allt eftir. Og ekki verður af ríkisstjórninni skafið að hún hefur komið ýmsum stefnumálum sínum í framkvæmd. Hún lækkaði auðlegðarskatt, lækkaði skatta á útgerð, hefur boðað einföldun á skattkerfinu með lægri skattprósentu á marga og boðar tollalækkanir. Þá hefur hún staðið fyrir einhverri mestu eignatilfærslu íslenskrar stjórnmálasögu með því að færa þeim sem keyptu sér íbúðarhúsnæði á ákveðnu árabili umtalsverða fjármuni, óháð þörf þeirra. Á dögunum var síðan kynnt áætlun um afnám hafta, en þau mál skipta gríðarlegu máli fyrir þjóðarbúið. Alls hlutu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur 51,1 prósent atkvæða í kosningunum árið 2013 og stjórnarflokkarnir hafa hvor um sig 19 þingmenn, eða samanlagt 38 af þeim 63 sem á þingi sitja. Hún hefur því verið í kjöraðstöðu til að breyta samfélaginu eftir eigin höfði. Fréttablaðið birtir í dag niðurstöður skoðanakönnunar sem sýna að aðeins 37 prósent kjósenda styðja ríkisstjórnina. Það er nánast sama hlutfall og í síðustu könnun blaðsins sem gerð var í nóvember. Tæplega tveir af hverjum þremur aðspurðum eru andvígir ríkisstjórninni. Og staðan er enn verri, frá bæjardyrum stjórnarflokkanna séð, ef aðeins er horft til kvenna. Fjórðungur kvenna styður ríkisstjórnina. Í hópi fjögurra kvenna geta ráðherrar vonast til þess að ein kona styðji ríkisstjórnina. Þetta er grafalvarleg staða sem ráðherrar þurfa að taka alvarlega. Það er ekki hægt að henda á borð einhverjum frösum um að fylgið muni nú aukast, allt sé nú á uppleið og aðeins tímaspursmál hvenær staðan batni. Hvað þá að það sé hægt að grípa til jafn ófyrirleitinna skýringa og forsætisráðherra gerði þegar hann talaði um rof á milli skynjunar og raunveruleika hjá þjóðinni. Sigmundur Davíð gerði reyndar rétt í því að taka skoðanakannanir alvarlegar en hann gerir, en þær sýna að aðeins tæplega 9 prósent aðspurðra styðja Framsóknarflokkinn. Ríkisstjórn sem er á þessum tímamótum, hálfnuð með kjörtímabilið og með þennan þingstyrk á bak við sig hlýtur að spyrja sig hvernig á því standi að fylgið sé ekki meira en raun ber vitni. Það er ekki endalaust hægt að vísa ábyrgð á fylgisleysinu yfir á þá sem sækja á fylgið til. Ef einhver hefur ekki áhuga á því sem þú hefur upp á að bjóða er það ekki viðkomandi að kenna. Þú þarft þá kannski að fara að velta því fyrir þér hvort þú sért með það rétta á boðstólum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbeinn Óttarsson Proppé Mest lesið Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson Skoðun Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson Skoðun
Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir Skoðun
Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason Skoðun
Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir Skoðun
Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason Skoðun