Opel Corsa á sér langa sögu, en hann kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1982. Corsa er nú að koma af fimmtu kynslóð en hann er að sönnu mikill magnsölubíll. Hann hefur selst í 12,3 milljónum eintaka frá upphafi og er fyrir vikið afar mikilvægur bíll fyrir Opel, enda stendur hann fyrir þriðjungi allrar sölu Opel. Opel Corsa er mest selda einstaka bílgerð sem framleidd er af öllum þýsku bílaframleiðendunum og selst hann í um 250.000 eintökum á ári bara í Evrópu.

Frábær þriggja strokka bensínvél
Undirvagn bílsins er allur nýr, stífleiki hans hefur aukist og fjöðrunin er orðin sportlegri og stífari. Reyndar má breyta hegðun hennar með Comfort og Sport stillingu og fæst meiri tilfinning fyrir vegi með Sport stillingunni. Til að auka á aksturhæfni bílsins hefur hann verið lækkaður um 5 millimetra frá vegi. Allar þessar breytingar frá fyrri kynslóð virðast hafa aukið akstursgetu bílsins og fyrir vikið er ferlega skemmtilegt að henda honum um göturnar, ekki síst um góðar götur Þýskalands þar sem hann var reyndur og þar fannst honum býsna gaman að leika sér.

Óhætt er að mæla með þriggja strokka vélinni umfram þá stærri, sérlega í öflugri útfærslu hennar. Einnig er rétt að mæla með beinskiptingu umfram sjálfskiptingu og spara í leiðinni aur. Opel Corsa mun einnig fást með 1,3 lítra dísilvél í tveimur útfærslum, 75 og 95 hestafla og eyða þær svo lítlu sem 3,2 lítrum. Skemmtilegust þeirra allra er öflugri 3 strokka vélin. Með henni í húddinu leggur maður ekki frítt í stæði, en það á við dísilvélina, sem aðeins mengar 88 g/km.
Lítið breyttur að utan en þess meira að innan
Eins og fyrr sagði er útlitsbreyting Opel Corsa ekki mikil, en samt verður að segja að öllu því sem þó hefur verið breytt hafi verið til góðs. Hann er með fegurra og grimmara nef og hann hefur fengið lánaða flotta neðri hliðarlínuna frá Opel Insignia. Breytingin að aftan er sáralítil, en þó má helst greina á milli kynslóðanna með ljósunum. Ef til vill hefur Opel verið hrætt við að breyta bílnum mikið, rétt eins og Volkswagen með Golf, en báðir eiga það sammeiginlegt að hafa selst mjög vel af síðustu kynslóð.

Greinilegt er að Corsa hefur fengið margt að láni í innanrýminu frá enn minni bróður sínum, Adam og er það hið besta mál. Hreint magnað er að sjá hve innanrými bílsins er gott og ekki geta aftursætisfarþegar kvartað undan fóta- eða höfuðrými. Farangursrými er 285 lítrar og er á pari við flesta aðra bíla í stærðarflokknum.
Verðið í hærri kantinum í flokknum
Helstu samkeppnisbílar Opel Corsa eru Ford Fiesta, Volkswagen Polo, Renault Clio, Peugeot 208, Kia Rio og Toyota Yaris. Fiesta kostar frá 2.390.000 (65 hestöfl), Polo frá 2.310.000 (75 hestöfl), Clio frá 2.360.000 (75 hestöfl), Peugeot 208 frá 2.290.000 (68 hestöfl), Rio frá 2.550.000 (75 hestöfl) og Yaris frá 2.740.000 ( hestöfl).
Opel Corsa mun kosta frá 2.690.000 kr. og er því í hærri kantinum í þessum flokki bíla. Hafa verður þó í huga að um mjög vel búinn bíl er að ræða og með öflugri vél en flestir hinna. Bílabúð Benna mun hefja sölu á ölu á Opel Corsa kringum tuttugasta þessa mánaðar.
Kostir: Mikið rými afturí, fínir aksturseiginleikar, hljóðlátur
Ókostir: Of há mengunargildi bensínvéla, efnisval í innréttingu
1,0 l. bensínvél, 115 hestöfl
Framhjóladrif
Eyðsla: 4,1 l./100 km í bl. akstri
Mengun: 115 g/km CO2
Hröðun: 10,3 sek.
Hámarkshraði: 195 km/klst
Verð: kr. 2.690.000 kr.
Umboð: Bílabúð Benna