Bílar

Flott Dodge Star Wars auglýsing

Finnur Thorlacius skrifar
Hver vill ekki stökkva á vagninn með Star Wars við frumsýningu hennar og það hefur einmitt Dodge gert. Nú þegar hafa 430.000 séð þessa auglýsingu Dodge á YouTube og líklega er hún þess verðug.

Fiat Chrysler Automobiles fyrirtækið í heild, sem framleiðir Dodge bíla ásamt mörgum öðrum bílamerkjum, gerði samning við framleiðanda myndanna með leyfi til að tengja bíla þess við Star Wars. Menn eru á því að Dodge hafi gert best bílamerkja FCA og framleitt skemmtilegustu auglýsinguna með þessari tengingu.

Það eru Dodge Charger, Dodge Challenger og Dodge Durango bílar sem koma við sögu í auglýsingunni og það ekki fá eintök af þeim. Ástæðulaust er að greina meira frá auglýsingunni því eins og fyrr er sjón sögu ríkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×