Ótrúlega ljót ný Lada XRAY Finnur Thorlacius skrifar 9. nóvember 2015 14:55 Lada XRAY gæti sært fegurðarskyn margra.
AvtoVAZ frá Rússalndi sem framleiðir Lada bíla hefur svipt hulunni af nýjum bíl sem framleiðsla hefst á þann 15. desember næstkomandi. Það verður ekki sagt annað en LADA rati sömu slóð og fyrr hvað útlit bíla sinna varðar. Þessi bíll mun seint fara í sögubækurnar hvað fegurð varðar, en hugsanlega slær hann nýtt met í hina áttina. Bíllinn hefur fengið nafnið XRAY. AvtoVAZ hefur áður sýnt forvera þessa bíls, tilraunabíl sem var svo til alveg eins. Því virðist sem enginn hafi haft hjarta í sér að segja þeim AvtoVAZ mönnum í millitíðinni hve ljótur bíllinn er. Það er eins og ekið hafi verið á bílinn, bæði á fram- og afturbrettin, en þar eru furðu stórar dældir. Bíllinn virðist alltof hár fyrir þá litlu glugga sem á hliðum hans er og því verða hurðirnar eins og heilar heimsálfur og gluggarnir sem smá stöðuvötn í samanburði. Ekki lagar það hlutföllin á hve litlum felgum og hjólbörðum bíllinn er. Er þarna því kominn einn ljótasti bíll sem framleiddur hefur verið, a.m.k. á þessum áratug, en þetta útlit hefði kannski þótt í lagi fyrir aldamót. Hafa skal í huga að hér er um álit greinarskrifara að ræða og ekki víst að allir séu honum sammála. Bíllinn fæst með 106 hestafla 1,6 lítra bensínvél sem líka má fá í 114 hestafla útfærslu. Einnig er í boði 123 hestafla og 1,8 lítra bensínvél og með henni má fá bílinn sjálfskiptan, en þá aflminni aðeins beinskipta.
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent