Leikfangabíll kemur upp um útlit nýs Volvo V90 Finnur Thorlacius skrifar 20. október 2015 16:13 Volvo V90 leikfangabíllinn sýnir glögglega endanlegt útlit bílsins.
Svo virðist sem einhver starfsmaður leikfangaframleiðanda í Kína hafi komið upp um endanlegt útlit nýs bíls frá Volvo sem hafin verður sala á á næsta ári, Volvo V90. Að minnsta kosti hefur eitt eintak leikfangabílsins verið myndað hér í bak og fyrir og myndunum dreift öllum til sýnis. Volvo hefur þegar kynnt XC90 jeppann og styttast fer í kynningu á S90, sem er stór fólksbíll með skotti. Í kjölfar hans á svo að koma þessi V90, sem hér sést í formi leikfangabíls. Þetta er langbakur í lúxusbílaflokki sem keppa á við bíla eins og Audi A6, BMW 5-línuna og Mercedes Benz E-Class, enda á stærð við þá. Volvo 90-serían mun leysa af Volvo S80 og V70 bílana. Svo virðist sem bíllinn hafi erft talsvert frá tilraunabíl Volvo Concept Estate og fagna því vafalaust margir þar sem það þótti með eindæmum fagur bíll. Framljósin eru Þórhamarslaga eins og í XC90 jeppanum og afturljósin eru alveg eins og í Concept Estate. Gler er á öllu þaki bílsins, krómaðir þakbogar og stór vindkljúfur að aftan.Séður að aftan.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent