Heilsugæslan á Thrifty bílaleigubílum Finnur Thorlacius skrifar 30. júní 2015 15:55 Fulltrúar Heilsugæslunnar, Brimborgar og Thrifty við undirritun samningsins.
Í kjölfar útboðs Ríkiskaupa þá hefur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins samið til þriggja ára við Thrifty bílaleigu um flotaleigu á 50 bílum fyrir starfsmenn Heilsugæslunnar sem veita skjólstæðingum stofnunarinnar heimaþjónustu. Thrifty bílaleiga bauð lægst í útboði Ríkiskaupa fyrir Heilsugæsluna. Samningurinn er um flotaleigu með allri þjónustu á sparneytnum smábílum sem Thrifty hefur áður leigt út til erlendra ferðamanna en það gerir leigunni kleift að bjóða mjög hagstætt leiguverð til Heilsugæslunnar. Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum aðgengilega og alhliða heilsugæsluþjónustu en heilsugæslan samanstendur af fimmtán heilsiugæslustöðvum í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Thrifty bílaleiga er í hópi stærstu bílaleiga á Íslandi með um 800 bíla í sinni þjónustu og leigir út bíla frá Brimborg af Ford, Volvo, Mazda og Citroën gerð. Thrifty leigir út fólksbíla í skammtímaleigu til erlendra ferðamanna og fólksbíla og sendibíla til Íslendinga ásamt því að bjóða langtímaleigu til fyrirtækja og einstaklinga.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent