Lincoln Continental endurvakinn Finnur Thorlacius skrifar 31. mars 2015 15:25 Nýr Lincoln Continaental er reffilegur bíll útlits.
Á bílasýningunni í New York sem nú stendur yfir er Ford að sýna nýjan Lincoln Continental lúxusbíl sem vakið hefur mikla athygli. Framleiðslu Lincoln Continental var hætt árið 2002, en fyrsta gerð hans kom í sölu árið 1939, þ.e. sama ár og seinni heimsstyrjöldin hófst. Ford menn segja að hugmyndabíllinn sem hér sést sé mjög nálægt framleiðsluútgáfu bílsins, en hann á að koma á markað á næsta ári. Þessi bíll á að marka nýtt útlit Lincoln bíla og gefa tóninn fyrir aðrar gerðir. Nýi bíllinn er sannkallaður lúxusbíll og innrétting hans mjög íburðarmikil og sérvalið leður prýðir hann. Aðeins er pláss fyrir 2 farþega í aftursætum og ekki ætti að fara ver um þá sem þar sitja en í framsætunum, en stórt borð er á milli sætanna og þá er einnig kampavínskælir innan seilingar. Lúxusinn í bílnum er þannig að hann á ekki að vera mikill afturbátur Mercedes Benz S-Class. Bíllinn kemur með LED aðalljósum og hann stendur á 21 tommu felgum. Bíllinn mun fást með fleiri en einni vélargerð, en að minnsta kosta verður í boði 3,0 lítra V6 EcoBoost vél úr smiðju Ford. Vel ætti að fara um aftursætisfarþega. Vel ætti að fara einnig um bílstjórann.
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent