Lítill hluti bílaflotans yngri en 5 ára Finnur Thorlacius skrifar 5. maí 2015 11:13 Í dag eru liðlega 217 þúsund bílar á landinu og meðalaldur þeirra 12,7 ár.
Mjög forvitnilegt er að skoða tölur frá Samgöngustofu um aldur og fjölda bíla landsmanna á síðustu 20 árum. Það sem mesta athygli vekur er hve bílaflotinn er orðinn aldraður í dag og samanburðurinn við árið 2007 er nokkuð sláandi. Sem dæmi var 40,7% flotans 5 ára eða yngri árið 2007 og ámóta tölur sáust allt til ársins 2009. Samsvarandi tala fyrir árið 2014 sýnir að það eru aðeins 16,2% bíla nú.Meira en helmingur bíla eldri en 10 ára Alls voru 69,7% bílaflotans 10 ára eða yngri árið 2007, en 48,8% við síðustu áramót. Því er nú meira en helmingur flotans eldri en 10 ára og meðalaldurinn 12,7 ár og 13,9 ár hvað áhrærir aðra bíla en fólksbíla. Aðeins 15,3% bíla árið 2007 voru 16 ára eða eldri, en 28,5% nú. Í dag má finna 24.933 bíla sem eru eldri en 20 ára en þeir voru aðeins 15.955 árið 2007. Heildarfjöldi bíla árið 2007 var 206.969, en þeir eru 217.459 nú.Bílaflotinn þriðji elsti í Evrópu árið 2011 Samtök bílaiðnaðarins í Evrópu (ACEA) halda utan um meðalaldur bíla í Evrópulöndum, en í upplýsingum frá samtökunum sést að árið 2011 var bílaflotinn hér á landi sá þriðji elsti á eftir Eistlandi og Finnlandi, en meðaltalið var 8,6 ár. Líklega hefur staða Íslands síst batnað síðan þá þar sem bílaflotinn hefur elst um ríflega eitt ár frá 2011. Í Bandaríkjunum er nú eldri bílafloti en að jafnaði í Evrópulöndum. Þar vestra hefur meðalaldurinn færst frá um 10 árum uppí 11,4 ár nú og búist er við því að hann fari uppí 11,7 ár árið 2019. Ágæt bílasala í Bandaríkjunum á allra síðustu árum hefði því þurft að vera meiri til að ná sama meðalaldri bíla og fyrir hrun. Meðalaldur bíla í Bandaríkjunum er samt nú 1,5 árum lægri en hér á landi þrátt fyrir að vera eldri en almennt í Evrópu.Helmingur endurnýjunarinnar bílaleigubílar Endurnýjun bílaflotans hérlendis er nú örlítið hraðari en fyrstu árin eftir hrun en þó þyrfti salan að vera meiri til að bílaflotinn tæki að yngjast að nýju. Síðustu ár hefur allt að helmingur nýrra bíla sem seljast á landinu verið til bílaleiga. Semi dæmi voru 4.472 bílar af 9.536 bíla sölu í fyrra til bílaleiga. Allir þessir bílar eru svo seldir til íslenskra kaupenda og að meðaltali eftir um eitt og hálft ár. Það þýðir að helmingur endurnýjunarinnar er í gegnum bílaleigur og margur Íslendingurinn ekur nú um á fremur nýjum bíl sem var áður í þjónustu bílaleiga.Þurfa bílaleigur brátt að flytja út notaða bíla sína? Með sívaxandi þörf fyrir fleiri bílaleigubíla og auknum kaupum þeirra gæti sú staða komið upp að erfitt gæti reynst fyrir leigurnar að selja notaða bíla sína til landans. Þá gæti bílaleigum reynst sá kostur vænstur að flytja þá notuðu bíla sem þau verða að losna við til útlanda. Hætt er þó við að minna fengist fyrir þá en í sölu hér. Þetta gæti orðið til þess að lækka verð notaðra bílaleigubíla hérlendis, eða útflutnings þeirra.
Mest lesið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Selfoss stöðvaður í Bretlandi Innlent Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Innlent Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Erlent Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Innlent Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Erlent Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Innlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Björg býður ungliðum til fundar Innlent