Sígild ítölsk máltíð: Ítalskar kjötbollur í tómat- og basilíkusósu Eva Laufey Kjaran skrifar 4. maí 2015 13:00 Girnilegt í ítalskri veislu að hætti Evu Laufeyjar Vísir/Stöð 2
Ítalskar kjötbollur í tómat- og basilíkusósu Tómat- og basilíkusósa 1 laukur, smátt skorinn 2 hvítlauksrif, marin 500 ml tómatapassata ½ kjúklingateningur 1 msk. fersk steinselja, smátt söxuð 1 msk. fersk basilíka, smátt söxuð skvetta af hunangi eða smá sykur salt og pipar, magn eftir smekk Hitið olíu við vægan hita í potti, steikið lauk og hvítlauk í olíunni í 1-2 mínútur. Bætið öllu hinu í pottinn og leyfið sósunni að malla á meðan þið búið til kjötbollurnar. Getty/Stöð 2 Kjötbollurnar 500 g nautahakk 500 g svínahakk 1 dl brauðrasp 1 laukur, smátt skorinn 3 hvítlauksrif, marin 3 msk. fersk steinselja, smátt söxuð 1 msk. fersk basilíka, smátt söxuð 2 msk. rifinn parmesanostur 1 egg, létt pískað salt og pipar, magn eftir smekk smá hveiti góð ólífuolía Blandið öllum hráefnum saman með höndunum og búið til jafn stórar bollur úr deiginu. Veltið bollunum upp úr smá hveiti og leggið þær í eldfast mót. Sáldrið olíu yfir bollurnar og setjið inn í ofn við 180°C í 10-15 mínútur. Þegar bollurnar eru tilbúnar þá hellið þið sósunni varlega ofan í eldfasta mótið og eldið áfram í 20 mínútur. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum, ég mæli með að þið notið spagettí eða linguini. Berið réttinn fram með rifnum parmesan og mikið af honum. Vísir/Stöð 2 Tíramísú 4 egg 100 g sykur 400 g mascarpone-ostur, við stofuhita ½ tsk. vanilluduft eða vanillusykur 4 dl þeyttur rjómi 250 g kökufingur(Lady fingers) 6-7 dl sterkt uppáhellt kaffi kakó eftir þörfum smátt saxað súkkulaði Stífþeytið egg og sykur saman þar til þykk froða myndast. Blandið mascarpone-ostinum saman við eggjablönduna og hrærið vel. Bætið vanillu og rjómanum varlega saman við með sleif. Hellið upp á sterkt kaffi og setjið kaffið í skál. Veltið kökufingrunum upp úr kaffinu og raðið þeim í há glös. Setjið 2-3 matskeiðar af ostablöndunni ofan á og sigtið vel af góðu kakói yfir. Það er fullkomið að saxa niður dökkt súkkulaði og sáldra yfir réttinn í lokin. Þessi eftirréttur þarf að fá að standa í kæli í lágmark þrjár klukkustundir (helst yfir nótt) áður en hann er borinn fram.
Eftirréttir Eva Laufey Kjötbollur Nautakjöt Uppskriftir Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið