SagaFilm selja sauna-bað Georgs 13. september 2014 09:00 Spaugstofan „
Þessi markaður í dag verður náttúrulega sjúklega stór. Við erum að selja alla leikmuni, föt, tækjabúnað og hinum ótrúlegustu hlutum sem Saga Film hefur sankað að sér í gegnum þessi 36 ár sem við höfum starfað,“ segir Alda Karen Hjaltalín, sem starfar hjá fyrirtækinu, en hið íslenska kvikmyndaframleiðslufyrirtæki heldur flóamarkað í dag, í húsnæði þeirra á Laugavegi 176. „Þetta er rosalega mikið magn af skemmtilegu dóti. Svona að gamni má nefna sauna-baðið sem Georg Bjarnfreðarson notaði í Dagvaktinni, málverk af Jóhönnu Sigurðardóttur sem var notað í leikmyndina í Spaugstofunni á árum áður, málverk af Davíð Oddssyni í hempu og svo mætti lengi telja,“ heldur Alda Karen áfram.Saga Film hafa tekið upp suma vinsælustu innlendu þáttaraðir sem gerðar hafa verið, svosem Ástríði, Stelpurnar, Pressu, Rétt, Spaugstofuna, Svínasúpuna, og Heimsenda svo eitthvað sé nefnt. „Við verðum líka með tæki úr tækjaleigunni okkar, Luxor,“ heldur Alda Karen áfram og hvetur tækjanörda til að sækja markaðinn. Markaðurinn stendur frá eitt til fimm í dag. „Þetta verður allt selt á kostakjörum. Við eigum svo mikið af dóti að við verðum að losna við þetta,“ segir Alda Karen og hlær. „Við erum með tvær stórar geymslur sem hafa verið undirlagðar öllu þessu dóti. Við ætlum að nota geymslurnar til að stækka við stúdóið okkar, þannig að við verðum að selja innan úr þeim.“Ólafur Ragnar og Georg Bjarnfreðarson
Mest lesið Króli gat ekki hugsað um neitt annað en Bjór Tónlist Frikki Dór reyndi að slá Íslandsmet Lífið Leitt að geta ekki auglýst leynivopnið sem myndi trekkja að Tónlist Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Bíó og sjónvarp Foreldrum hætti til að setja pressu á börn sín Lífið Eigendur Akureyri Backpackers selja höllina Lífið Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Bíó og sjónvarp Fékk sér þrjú húðflúr í andlitið Lífið Stofnaði íþróttavörumerki tvítug Lífið Fjölgar í fjölskyldu Bjarna Ben Lífið Fleiri fréttir Eigendur Akureyri Backpackers selja höllina Frikki Dór reyndi að slá Íslandsmet Fékk sér þrjú húðflúr í andlitið Foreldrum hætti til að setja pressu á börn sín Gaman að gefa þeim sviðið sem ekki eru oft þar Stofnaði íþróttavörumerki tvítug Sumarlegir og dísætir jarðaberjapinnar að hætti Kristu Fjölgar í fjölskyldu Bjarna Ben Ljótur skúr í miðbænum nú lítið glæsihús Gummi Marteins selur glæsihús í Garðabæ Hrekkjalómur kroppar slaufuna af ókyngreindum salernum Kjartan Henry og Helga selja í Vesturbænum Fyndnustu gæludýramyndir ársins sem unnu til verðlauna Hjörtun stækkuðu hjá Benna Brynleifs og Evu „Þegar ég vakna þá trúi ég því ekki að við séum saman“ Dorrit hvetur Nigel Farage til dáða Elli og María Birta eru stoltir fósturforeldrar í Las Vegas Veðurgæðunum misskipt hjá lesendum Vísis Rakel selur 290 milljóna króna heillandi hús í Vesturbænum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2024 Flestir vilja kalla Björn „forsetaherra“ Forsetakosningar greindar í tætlur á flugvellinum Einföld ráð til að hlaða batteríin yfir sumarið Guðni og Halla fagna saman Einir yngstu garðyrkjubændur landsins eru í Norðlingaholti Sveitasetur lýtalæknis til sölu: „Eign fyrir fjársterka aðila“ Flughetja selur slotið með heitum og köldum Af vængjum fram: Bestu augnablikin Aðstoðarkonan kærir Kanye fyrir kynferðislega áreitni Jón Daði og María Ósk nefndu drenginn Sjá meira