Ákærður fyrir kynferðisbrot: Áfram í gæsluvarðhaldi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. október 2014 10:06 Maðurinn er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum og þroskaskertri konu. Vísir/Pjetur
Aðalmeðferð í máli manns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum lauk í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa brotið gegn þroskaskertri konu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri mun maðurinn sitja í gæsluvarðhaldi til 14. nóvember eða þar til dómur fellur. Brot mannsins geta varðað allt að 10 ára fangelsi.Léku sér í boltaleik fyrir utan heimili mannsins Í gæsluvarðhaldsúrskurði héraðsdóms, sem Hæstiréttur staðfesti þann 28. ágúst sl., er manninum gefið að sök að hafa tælt tvo átta ára drengi inn í íbúð sína, en þeir voru í boltaleik fyrir utan heimili hans. Að sögn drengjanna kom maðurinn út og sakaði þá um að hafa sparkað bolta í bíl sinn. Hann mun hafa hótað drengjunum að hringja á lögregluna nema að þeir kæmu með honum inn og ræddu málið. Þegar inn var komið segir annar drengjanna að maðurinn hafi girt niður um þá. Hinn drengurinn segir að maðurinn hafi skipað þeim að taka sjálfir buxurnar niður um sig. Þá mun hann hafa skipað drengjunum að rassskella hvor annan. Hann mun einnig hafa skipað drengjunum að slá hvorn annan fastar þar sem honum fannst höggin vera of létt. Maðurinn mun síðan hafa rassskellt þá sjálfur og slegið þá ítrekað með flötum lófa að því er fram kemur í vitnisburði drengjanna.Voru með áverka Læknisskoðun leiddi í ljós að báðir drengirnir voru með áverka eftir rassskelli og kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að annar drengurinn hafi „einnig haft aðra áverka sem samrýmist sögu hans. Sá drengur staðhæfi einnig að drengirnir hafi ítrekað spurt sakborning hvort þeir mættu fara heim en hann sagt þeim að þegja.“ Dómur verður kveðinn upp innan fjögurra vikna.
Mest lesið Skoða að hefja gjaldtöku við Gróttu Innlent Sér ekki fyrir sér hvalveiðar í sumar Innlent Bjarni ferðaðist um Malaví með vélinni sem fórst Innlent Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Erlent Mesta mengunin vegna gossins mælst í Skotlandi Innlent Yrðu stórtíðindi í íslenskum stjórnmálum ef VG dytti út af þingi Innlent Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Erlent Björguðu hesti úr sjálfheldu í Skagafirði Innlent Vonast til þess að ráðgátan um Lögréttutjöldin leysist Innlent „Ég kem ekki nálægt þessum málum aftur“ Innlent Fleiri fréttir Nektarmyndum fækkar meðal ungmenna Skoða að hefja gjaldtöku við Gróttu Sér ekki fyrir sér hvalveiðar í sumar Yrðu stórtíðindi í íslenskum stjórnmálum ef VG dytti út af þingi Bjarni ferðaðist um Malaví með vélinni sem fórst Björguðu hesti úr sjálfheldu í Skagafirði Mesta mengunin vegna gossins mælst í Skotlandi „Þetta eru engar eðlilegar eða venjulegar dýraveiðar“ Spegilmynd af samfélaginu muni búa á Heklureit Tekist á um safnskóla í Laugardal: Áformin „vanvirðing og eiginlega valdníðsla“ Leiðinlegt þegar hönnun og hagkvæmni er stillt upp sem andstæðum Vonast til þess að ráðgátan um Lögréttutjöldin leysist Rannsaka kynferðisbrot en ekki innbrot Ráðherra sendir lögreglu erindi vegna netsölu áfengis Umdeild ákvörðun ráðherra og gosmóða yfir borginni Auka framlag Íslands til UNRWA um hundrað milljónir Skýra þurfi stöðu ríkissáttasemjara Karlmaður á þrítugsaldri lést í slysinu á Vesturlandsvegi Kári Stefánsson formaður í nýjum starfshóp „Ég kem ekki nálægt þessum málum aftur“ Senda fólk inn úr sólinni Segir allan áburð um kynferðisbrot úr lausu lofti gripinn Sextán ára reyndi að stinga lögguna af Ólíðandi misbeiting matvælaráðherra á valdi Þyrla kölluð út vegna vélsleðaslyss við Langjökul „Svartur dagur fyrir dýravelferð á Íslandi“ Allt önnur spá í kortunum Ólafur Ragnar segir deilur um forsetaembættið endanlega afgreiddar Skynsamlegt að loka gluggum og setja á hringrásarstillingu í bílnum Segja ákvörðun Bjarkeyjar í berhöggi við stjórnarskrá Sjá meira