Kemur nýr Honda S2000 árið 2017? Finnur Thorlacius skrifar 5. júní 2014 14:15 Honda S2000 hefur ávallt þótt frábær akstursbíll.
Það var ekki við mikla hrifningu margra bílaáhugamanna er Honda hætti framleiðslu á S2000 sportbílnum, en hann hefur ávallt þótt frábær akstursbíll. Honda hefur fleiri sportbíla á prjónunum en S2000. Minni bíll en S2000, Honda S660 roadster verður líklega einnig framleiddur og stærri sportbíll en S2000, Honda NSX hybrid, yrði líka framleiddur undir merkjum Acura fyrir Bandaríkjamarkað. Ef að þessum áformum Honda verður kæmi S2000 á markað árið 2017 og yrði hann talsvert dýrari en S2000 var þegar Honda hætti að framleiða hann árið 2009. Verðið yrði nálægt 60.000 dollurum í Bandaríkjunum, eða 6,8 milljónir króna. Verðið á S2000 var 35.669 dollarar árið 2009. Þessi nýi bíll yrði samt miklu öflugri en sá fyrri þrátt fyrir að vélarstærðin yrði aðeins 2,0 lítrar, en hún á að skila eitthvað yfir 300 hestöflum. Honda Civic Type R, sem er eini sportbíllinn sem Honda framleiðir í dag er um 300 hestöfl og þessi nýi bíll verður nokkru öflugri en það. Ekki er loku fyrir það skotið að bíllinn muni fá rafmótora til stuðnings brunavélinni og þannig búinn yrði hann enn einn hybrid ofursportbíllinn. Honda NSX hybrid yrði það einnig en sá bíll á að verða fjórhjóladrifinn.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent