QuizUp örast vaxandi leikur í sögu App Store Stefán Árni Pálsson skrifar 5. desember 2013 17:00 QuizUp hefur náð ótrúlegum árangri. MYND/ASTRSK PR
Smáforritaleikurinn QuizUp hefur aðeins verið á markaðnum í þrjár vikur og hafa þrjár og hálf milljón manna halað niður leiknum. Íslenska fyrirtækið Plain Vanilla framleiðir QuizUp. Spurningarleikurinn hefur slegið rækilega í gegn og er örast vaxandi iPhone leikur í sögunni. Hver einstaklingur spilar leikinn að meðaltali í 40 mínútur á dag sem eru tölur sem áður eru óþekktar. Þorsteinn Baldur Friðriksson, stofnandi og framkvæmdarstjóri Plain Vanilla, fer í gegnum leyndarmál fyrirtækisins og hvernig það náði eins góðum árangri og raun ber vitni í viðtali við tímaritið New York - News & Politics.„Maður verður að gera mistök og læra af þeim. Við fórum fyrst í gang með leik sem var ætlaður börnum á leikskólaaldri. Leikurinn hét The Moogies og átti hann erfitt uppdráttar,“ sagði Þorsteinn. „Það var í raun mjög misheppnaður leikur hjá okkur og enginn féll fyrir honum. Við neituðum samt sem áður að gefast upp og fórum strax út í það að hugsa um næsta leik. Þá var markmiðið að vinna hugmynd sem enginn annar hafði áður gert. Fljótlega gerðum við okkur grein fyrir því að það vantaði farsímaleik í takt við Trivial Pursuit borðspilið.“Hafðu leikinn einfaldan„Það sem virðist vera heilla okkar spilara er einfaldleikinn á bakvið leikinn. Þú skráir þig í gegnum Facebook og velur strax þann flokk sem þér hugnast best. Megin formúlan á leiknum er sú að ef þú svarar fleiri spurningum en andstæðingur þinn þá ferðu með sigur af hólmi, flóknara er það ekki.“Mikilvægt að uppfæra reglulegaNú þegar eru til yfir 200.000 spurningar í leiknum og starfsmenn Plain Vanilla vinna hörðum höndum að því að bæta við spurningum á hverjum degi. „Þú verður að uppfæra leikinn þinn reglulega svo spilarinn fái ekki leið á honum. Uppfærslan þarf að era auðveld í framkvæmd í símanum. Það eru í raun endalausir möguleikar þegar kemur að spurningaleikjum.“ „Við viljum að hægt sé að velja á milli mjög sérhæfðra flokka í leiknum svo fólk geti alltaf fundið eitthvað fyrir sitt hæfi. Spilarar fá ekki ástríðu fyrir mjög víðum spurningaflokkum en aftur á móti ef fólk fær að spreyta sig á uppáhalds kvikmynd þeirra eða spurningum varðandi síðari heimsstyrjöldina þá eru meiri líkur á því að viðkomandi finni sig í QuizUp."
Leikjavísir Mest lesið Danakonungur sagður hafa daðrað við Þórdísi Lífið Þakklátur starfsfólki Landspítalans eftir mótorhjólaslys Lífið Þórdís slær á slúðursögurnar og þykir miður að fjallað sé um þær á Íslandi Lífið „Hæfileikarnir hafa ekkert með kílóin að gera“ Lífið Tilkynna óléttu tveimur mánuðum eftir brúðkaup Lífið Hrekkjavökumyndir til að hafa í huga fyrir kvöldið Bíó og sjónvarp Sænskir áhrifavaldar hrifnir af klæðaburði íslenskra kvenna Lífið Eyddi Youtube síðu sonarins Lífið Björgólfur Thor selur 200 fermetra glæsiíbúð við höfnina Lífið Vekur athygli á einkennum heilaslags í minningu móður sinnar Lífið Fleiri fréttir CCP kynnir nýjan leik til sögunnar COD Black Ops 6: Myrkraverkin hafa sjaldan verið betri Steindi og Gunnar Nelson spila með GameTíví Íslendingar berjast hjá GameTíví GameTíví: Koma vetrarbrautinni til bjargar í Space Marine Until Dawn: Flott endurgerð á hryllilegum leik GameTíví: Jökull leiðir strákana til sigurs Árlegt „Fifa“mót GameTíví GameTíví: Heldur för sinni um Night City áfram God of War Ragnarök á PC: Kratos er enn klikkaður Stiklusúpa: Allt það helsta frá kynningu Sony í gær GameTíví: Íslendingaslagur í Warzone Space Marine 2: Fyrirtaks skemmtun af gamla skólanum Ólympíukvöld hjá GameTíví GameTíví: Plortedo spilar sig gegnum Night City CCP kynnir nýjan leik í söguheimi EVE Online GameTíví: Skúrkur í skýjunum GameTíví: Stefna á þrjá sigra í Warzone Astro Bot: Astro stígur ekki feilspor í nánast fullkomnum leik Star Wars heimurinn skoðaður í GameTíví Star Wars Outlaws: Ekki eins hræðilegur og internetið segir Endurgreiða þeim fáu sem keyptu Concord GameTíví: Snúa hlekkjaðir saman úr sumarfríi Sjá meira