Fastir pennar

Betri barnæska

Steinunn Stefánsdóttir skrifar
Heimur versandi fer er allt of vinsæll frasi. Á fjölmörgum og veigamiklum sviðum er samfélagið þó í stöðugri þróun til betri vegar. Þetta á ekki síst við um málaflokka sem tengjast börnum.

Engum blöðum er um það að fletta að heimurinn sem börn samtímans alast upp í nú er allnokkru flóknari en sá sem ömmur þeirra og afar, að ekki sé talað um langömmur og langafa, ólust upp í; flóknari áreiti og margfalt fleiri möguleikar. Og flókinn heimur felur líka í sér margvíslegar hættur.

Á móti kemur að börn samtímans eru talsvert betur búin til að takast á við þá hluti sem mæta þeim á lífsleiðinni en formæður þeirra og -feður. Ástæðan er ekki síst sú að menningin hefur þróast á þann veg að fullorðið fólk, bæði foreldrar og fjölskylda og líka það fólk sem starfar með börnum, hefur tekið upp þann góða sið að hlusta á börn og taka mark á þeim.

Fréttablaðið greindi í gær frá því að átta börn hefðu á síðustu tveimur árum komið á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans vegna kynáttunarvanda – en það hugtak er notað um upplifun frá unga aldri um að hafa fæðst í röngu kyni og telja sig tilheyra hinu kyninu. Þetta er dæmi um vanda sem ekki þarf að fara langt aftur í tímann til að sjá fyrir sér að allar líkur hefðu verið á að þaggaður hefði verið niður, ef svo ólíklega hefði viljað til að barn hefði haft uppburði í sér til að orða hann. Barn með kynáttunarvanda hefur þurft að eiga hann við sig sjálft án nokkurrar leiðsagnar.

Í Kastljósi síðustu tvö kvöld hefur þjóðin hlýtt á fullorðið fólk lýsa atvikum úr eigin æsku og æsku ástvina, kynferðislegri misnotkun sem þau geymdu ýmist með sjálfum sér eða töluðu um fyrir daufum eyrum. Maður, sem á allra vitorði var að níddist á börnum, vann í æskulýðsstarfi og var um langt árabil látinn vera yfirmaður ungra drengja á vinnustað í borginni. Börn voru vöruð við manninum en um áratuga skeið virðist fáum hafa dottið í hug að taka á meinsemdinni og kæra manninn til lögreglu. Börnin urðu bara sjálf að bjarga sér og vinna úr aðstæðum sínum.

Undanfarin misseri hefur verið greint frá misnotkun á börnum innan kirkna og á heimilum sem veita áttu börnum skjól og víðar, misnotkun sem hafði verið þögguð niður um áratuga skeið. Hugrakkt fólk sem horfst hefur í augu við beiskar minningar hefur rutt braut sem afléttir þögguninni.

Á sama tíma hefur sú þróun orðið að lagaramminn í kringum börn hefur skýrst, börn teljast börn til átján ára aldurs, réttindi þeirra eru skilgreind sérstaklega og þau eru upplýst um réttindi sín. Enn á þó eftir að lögfesta barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fullgiltur var fyrir rúmlega 20 árum. Ekkert tækifæri skal látið ónotað til að minna á það.

Fátt bendir til annars en að þróunin muni halda áfram, að virðing fyrir mannréttindum barna muni aukast frekar og þöggunarhulunni verði enn frekar aflétt af málum sem áður lágu í algeru þagnargildi. Sú þróun mun afdráttarlaust draga úr möguleikum níðinga á að skaða börn.






×