Sannleikurinn: Maria ekki dóttir Sigmundar Davíðs Andri Þór Sturluson skrifar 27. október 2013 15:32 Sigmundur segir það af og frá að hann sé faðir róma-barnsins eins og kjaftasagan segir.
Stúlkan sem fannst meðal róma-fólks á Grikklandi, er ekki dóttir Sigmundar Davíðs forsætisráðherra. Í þættinum Sprengisandur á Bylgjunni í morgun sagði Sigmundur það af og frá að hann ætti stúlkuna en grimmar kjaftasögur hafa gengið manna á milli þess efnis. „Loksins fer maður í lítið fimm daga frí og það er ekkert nema skammir og á sama tíma verið að dreifa sögum út um allt að maður sé að eignast börn hér og þar,“ segir Sigmundur, sem segir lítt gaman að vera skotspónn kjaftakerlinga og spunameistara eftir að hann og flokkur hans komst til valda.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu eða svo segir sagan.
Harmageddon Mest lesið „Ég geri þá kröfu að þú hleypir mér héðan út!“ Harmageddon Myndband frá einum síðustu tónleikum Nirvana Harmageddon Sannleikurinn: Elsta systkinið mest óþolandi Harmageddon Engin Agent Fresco plata á þessu ári Harmageddon Ofskynjunarsveppir gegn þunglyndi Harmageddon Tóku upp klámmyndband fyrir utan kirkju hommahatara Harmageddon Vegakerfi úr sólarsellum er klárlega framtíðin Harmageddon Nine Inch Nails: Sjálfsmorð með vott af bjartsýni Harmageddon Sannleikurinn: "En á björtu nótunum þá hefst 30 ára afmælisdagskrá Rásar 2 á morgun“ Harmageddon Maðurinn sem framleiðir sitt eigið áfengi innvortis Harmageddon