Bakþankar

Ókláruð staka til forsetans

Jón Sigurður Eyjólfssoon skrifar
Það er engu líkara en vitund mín skipti um forrit þegar ég legg land undir fót. Það verður til dæmis á mér mikil umbreyting þegar ég kem heim til Íslands frá Spáni. Um leið og ég labba inn í Leifsstöð falla stökurnar af munni mér og það verður engu líkara en ég finni fyrir Agli Skallagrímssyni berjast um í brjósti mér. Ég einhendi mér svo í hundrað hluti sem ég klára svo aldrei.

Aðsama skapi kemur allt spænskt mér spánskt fyrir sjónir eftir þessi umskipti. Svo opnast spænski heimurinn fyrir mér aftur um leið og ég er lentur í Alicante. En þá á Íslendingurinn allt í einu undir högg að sækja. Ég hætti til dæmis að drekka kaffi og á erfitt með að yrkja stökur en gríp fram í fyrir hverjum manni að spænskum sið.

Það versta er að ég hafði ekkert spáð í þessum umskiptum þar til ég fékk, nú fyrir helgi, neyðarkall frá Spáni hingað til Íslands. Þá fékk ég þau válegu tíðindi á vefpósti mínum að ég væri fallinn í einu námskeiði í háskólanum í Kordova nema ef ég skilaði verkefni í hvelli sem ég og ætlaði að gera. En þá kom babb í bátinn. Þetta spænska skólaþrugl var ekkert í íslenska forritinu mínu. Heilinn neitaði að skanna spænskar rafskruddur, nafnið á námskeiðinu fannst ekki í minninu og búið var að díkóda kennarann svo mér fannst hann varla geta verið til í alvörunni.

Ég gæti best trúað að flestir evrópskir ráðamenn glími við svipað vandamál. Þeir hafa nú setið ófáa fundi saman og fundið lausn vandans á hverjum fundi. En svo fara þeir til síns heimalands þar sem vitundin virkar eftir öðru forriti sem díkódar niðurstöður fundanna og þjappar Merkel og Barosso niður í nokkur kílóbæti.

En hvernig er með okkar leiðtoga? Virka þeir eftir einu forriti þegar þeir leika fulltrúa okkar á erlendri grund og svo öðru þegar þeir tala við okkur? Hvað um forsetann til dæmis? Mér finnst að það ætti að gera þá kröfu um að hann virki alltaf eftir sama forritinu. Eða eins og ég segi:

Forseti Íslands aldrei skal í útlöndum skipta um forrit og aldrei hirða um útlensku hjal en hlusta þó stundum á ? sjúddirallirei, sjúdirallila.

Eins og ég segi, ég á stundum svolítið erfitt með að klára það sem ég byrja á.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×