Niðurstaðan jákvæð og mikil hvatning 13. desember 2012 17:54
Meirihluti þeirra sem styðja Samfylkinguna segist í skoðanakönnun styðja Árna Pál Árnason til formennsku í flokknum, en meirihluti svarenda úr öllum flokkum til samans, styður Guðbjart Hannesson. Samkvæmt könnuninni sem MMR gerði fyrir viðskiptablaðið, styðja 57,5 prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar Árna Pál og 42,5 prósent Guðbjart Hannesson velferðarráðherra. Munurinn er 15 prósentustig. Guðbjartur hefur hinsvegar nauman meirihluta þegar svör fólks úr öllum flokkum eru skoðuð, og munar þar einkum um eindregin stuðning Vinstri grænna við hann, og meirihlutastuðning kvenna. Árni Páll segir mikilvægt að Samfylkingin byggi á kröftugri framtíðarsýn en ekki kyrrstöðu. „Þetta er jákvæð niðurstaða og mikil hvatning. Þetta er auðvitað aðeins vísbending um stöðuna en hún er mikilvæg. Ég er sannfærður um að þorri Samfylkingarmanna deilir þeirri skoðun með mér að það sé mikilvægt fyrir Samfylkinguna að halda áfram og við byggjum starf okkar á kröftugri framtíðarsýn," segir Árni Páll. Árni segir mikilvægt að Samfylkingin leiki enga biðleiki í stöðunni eins og hún er nú. „Heldur sé Samfylkingin með sjálfstraust til þess að velja sér forystu sem að hefur framtíðarsýn og vill hasla Samfylkingunni völl sem raunverulegs burðarflokks á miðju og til vinstri." Guðbjartur nýtur meira stuðnings meðal kvenna innan Samfylkingarinnar samkvæmt könnun MMR en Árni Páll. Hann segir Samfylkinguna feminískan flokk og hann hafi sýnt með störfum sínum sem ráðherra jafnréttismála og þingmaður að hann sé femínisti.Sp. blm. Sumir hafa stillt því upp að þú sért meiri hægri-krati heldur en Guðbjartur og að hann sé meiri vinstri-krati. „Það eru svona merkimiðar sem fóru með áhrif vinstrimanna í íslenskum stjórnmálum og gerðu þá áhrifalausa í áratugi. Samfylkingin var stofnuð utan um opið og fordómalaust samtal en ekki innihaldslausa merkimiða," sagði Árni Páll.
Mest lesið Icelandair misþyrmi íslenskri tungu Innlent Stórar og flóknar tilfinningar sem aðstandendur glíma við Innlent Segir samstarfið vera að þurrka flokkinn út Innlent Lögreglumaður dæmdur fyrir brot í starfi Innlent Segja tíma SÍS hafa verið „sóað í sýndarsamráð“ um gjaldfrjálsar skólamáltíðir Innlent Dregið úr happdrætti Ástþórs Innlent Milljarða sekt fyrir illa meðferð á hundum Erlent Fæddist með einn fót og Ungfrú Ísland næst á dagskrá Innlent Leifar af heimskautavetrinum valda usla Veður Guðmundur ráðinn aðstoðarmaður þingflokks Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Davíð Þór hættir og Eiríkur nýr varaforseti Stefán Andrew tekur við formennsku af Sigurði Erni Virðist hafa dregið verulega úr krafti gossins Icelandair misþyrmi íslenskri tungu Stórar og flóknar tilfinningar sem aðstandendur glíma við Lögreglumaður dæmdur fyrir brot í starfi Guðmundur ráðinn aðstoðarmaður þingflokks Viðreisnar Segja tíma SÍS hafa verið „sóað í sýndarsamráð“ um gjaldfrjálsar skólamáltíðir Enginn ágreiningur uppi og útlendingafrumvarpið afgreitt í vikunni Lokun ungmennahúss blaut tuska í andlit hafnfirskra ungmenna Hvetur bændur til að forða fé frá aftakaveðri Sakar ríkisstjórnina um vanfjármögnun lögreglunnar Segir samstarfið vera að þurrka flokkinn út Samfylkingin með öll spil á hendi í stjórnarmyndun Biðu eftir strætó sem kemur ekki fyrr en á næsta ári Dregið úr happdrætti Ástþórs Fæddist með einn fót og Ungfrú Ísland næst á dagskrá VG mælist aðeins með þrjú prósent Annasamir dagar framundan hjá Höllu Ökumanns sem ók á mann á rafmagnshlaupahjóli leitað Trúðamótmæli, viðvaranir og einfætt fegurðardrottning Búinn að vera með suð í eyranu í rúm þrjátíu ár Harður árekstur á gatnamótum Suðurlandsvegar og Skeiðavegar Hlutur sakborninga mismikill Sigurður Ingi fjarri góðu gamni Dómurinn segir margt á huldu í máli Kolbeins Telur ekki að Katrín hafi gert mistök Trúðar mótmæla við Alþingi Tvær herþotur og 120 liðsmenn NATO komin til landsins Segir Kolbein hafa veitt liðsinni eftir fremsta megni Sjá meira