Fastir pennar

Vinátta

Jónína Michaelsdóttir skrifar
Eitt af því dýrmætasta í lífinu er traust og varanleg vinátta.



Við veljum okkur ekki foreldra, börn, kennara eða annað samferðafólk. En við veljum sjálf maka og vini og berum ábyrgð á því vali. Vinátta birtist í ýmsum myndum. Aristóteles greindi á milli nytsemisvináttu, ánægjuvináttu og sannrar vináttu, og vissi hvað hann söng. Vinátta sem verður til á bernsku- og uppvaxtarárum býr oft í vitundinni ævina á enda.



Þegar við förum í fullorðinsleikinn erum við komin í annan heim. Þar eru margvísleg félagskerfi sem við stöldrum mislengi í. Góð vinátta getur myndast hjá fólki sem á samleið um tíma, til dæmis í í framhaldsnámi, á vinnustöðum, í íþróttum eða í tengslum við önnur áhugamál. Þegar leiðir skilja er það gjarnan með fyrirheitum um að vera áfram í sambandi. Oftar en ekki dregur úr því með tímanum og fólk kemst á viðverðumendilegaðfarahittast stigið.Væntumþykjan er enn fyrir hendi, en gömlu vinirnir passa kannski ekki inn í nýja félagskerfið.

SamskiptiSú vinátta sem birtist í því að fólk hittist einu sinni á ári, þó að það eigi bíl og búi í sama kjördæmi, getur verið alveg jafn djúp og traust og hin sem hlúð er að á annan hátt. En hún er ekki virk nema í vitundinni.



Eftir að bæði kynin urðu fyrirvinnur og börnin í umsjá annarra alla virka daga, urðu frístundir og samvera fjölskyldunnar dýrmætari. Í dag er algengt að vinátta milli foreldra og barna sé á þann veg, að þegar afkomendurnir eru komnir með eigin fjölskyldu, verða þau bestu vinir foreldranna. Og í þó nokkrum tilvikum það fólk sem þeir verja öllum frístundum með. Eðlilega.



Í dag verður maður var við, að fyrir utan stóru klúbbana, Rotary, Lions og golfklúbbana, eru litlir hópar af báðum kynjum að hittast reglulega um allan bæ. Sumir hafa gert það í ár eða áratugi, aðrir skemur. Sameiginleg áhugamál og samstaða gegnum árin eru gjarnan kveikjan að slíkum hópum og límið í þeim. Það merkilega er, að þaðan sem ég stend, þá virðast þetta fyrst og fremst vera karlahópar.



Það er líka athyglisvert, að fólk í dag er orðið eins og Bretarnir, sem virðast ekki mikið fyrir að fá fólk heim til sín. Vill hitta það á pöbbinum. Og hér er þetta að verða raunin. Aldavinir af báðum kynjum vilja helst hittast á veitingastöðum. Þess utan eru samskipti annaðhvort á netinu eða með símaskilaboðum. Og ekkert við það að athuga. Þetta er nútíminn. En það eru til undantekningar. Til dæmis konur á níræðisaldri sem láta sér ekki nægja samskipti gegnum tölvur og síma.

VinkonuklúbburinnÉg vona að sem flestir hafi lesið viðtal Önnu Kristine í Fréttatímanum við konurnar sem hafa hist vikulega í hádeginu í sextíu og fimm ár.

Voru saman í Verslunarskólanum á sínum tíma og urðu ævivinkonur. Stofnuðu vinkonuklúbb, hittust framan af heima hjá hver annarri en færðu síðar selskapinn yfir á kaffihús eða matsölustað. Þetta voru sjö hressar og klárar konur og greinilega framtakssamar í betra lagi. Tvær eru látnar, ein er á elliheimili, en fjórar flottar voru mættar á veitingastaðinn Vox til að tala við blaðamanninn. Auk hádegisfundanna hafa þær ferðast víða um heim saman og hittast gjarnan í sumarbústað einnar þeirra. Þetta er semsagt hægt, ef viljinn og framtakssemin er fyrir hendi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×