Burt með þig, grámygla Dr. Gunni skrifar 18. mars 2010 06:00 Ísland er eyja. Það búa örfáir hérna. Það er glatað veður 75 prósent af árinu. Það er auðvelt að verða samdauna grámyglunni og veslast upp í vonleysi og væli. Það þarf átak til að komast héðan og þá fer maður á hausinn um leið og maður fær sér kaffibolla og samloku í útlöndum. Takk æðislega, sveigjanlega íslenska króna! við þetta má svo bæta að það er frábært að vera Íslendingur og alveg þrælmagnað að búa á Íslandi! það verður ferðast innanlands í sumar. Sem betur fer er allt fullt af einhverju skemmtilegu til að gera og sjá. Það þarf stórhug og áræðni til að koma einhverju upp sem trekkir að og rífur upp hversdagsleikann. Íslenska fortíðin, þegar lífið gekk út á það eitt að vinna, hefur yfir sér áru doða og samdauns. Nú í kreppunni kemur í ljós að maður er manns gaman og það ber að hlúa að því sem glæðir dagana lífi. Á sunnudaginn skrapp ég um Suðurnesin. Víkingaheimar, Rokkheimar og Skessan er allt frábært stöff í Keflavík. Saltfisksetrið í Grindavík líka. Svo var Guðbergsísk upplifun að sjá krakka hanga í sjoppunni og strák með træbaltattú á hálsinum spila í Rauðakrosskassanum. Um allt land eru mörg frábær veitingahús, hin ýmsustu „setur" og ísbúðir í fjósum, svo ekki sé nú minnst á náttúruna, sem er bara þarna og getur ekki annað. Allt þetta og heilmargt fleira glæðir hversdaginn lífi. Að þessu sögðu skil ég ekki hvað byggingafulltrúi borgarinnar er að böggast á Hrafni Gunnlaugssyni. Hvílík skammsýni og grámennska! Undraheimur Hrafns á Laugarnestanga er flottasti blettur Reykjavíkur og hann ætti frekar að fá fjárstyrk frá borginni en skammarbréf. Skilur þetta lið ekki að Hrafn er hugsjónamaður á borð við Samúel Jónsson í Selárdal og er að byggja upp stórkostlegt ævintýraland fyrir framtíðina? Ég fór þarna einu sinni með strákinn minn og það var algjörlega frábær upplifun. Partur af fjörinu var að vera með hjartslátt yfir því að Hrafn myndi birtast kolbrjálaður og reka okkur burtu, en svo er þetta bara rosalega flott og spennandi svæði sem listamaðurinn hefur nostrað við að koma upp. Góð lending í þessu máli þætti mér að Hrafnsheimar yrðu einhvern veginn innvinklaðir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn svo að sköpunarkraftur Hrafns mætti nýtast almenningi. Það á ekki að kæfa snillinga með reglugerðafargani. Það á ekki að leggja stein í götu þeirra sem vilja rífa okkur úr grámyglulega íslenska hversdagsleikanum. Það á ekki að stuðla að doða. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Dr. Gunni Mest lesið Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun Þeir sem hafa verulega hagsmuni af því að segja ykkur ósatt Þórður Snær Júlíusson Skoðun Samherjarnir Ingi Freyr og Georg Helgi Páll Steingrímsson Skoðun Hvernig varð staðan svona í Hafnarfirði? Einar Geir Þorsteinsson Skoðun Vindmyllur Þórðar Snæs Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir Skoðun Þingmaður með hálfsannleik um voffann Úffa Árni Stefán Árnason Skoðun Vanhugsuð kílómetragjöld og vantalin skattahækkun á árinu 2026 Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Minna stress meiri ró! Magnús Jóhann Hjartarson Skoðun
Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun
Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun
Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun
Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun