Bakþankar

Gnarrzenegger

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Eitt af öndvegisverkum kvikmyndasögunnar komst óvænt í Kastljósið á mánudagskvöld, þegar Jón Gnarr líkti sér við óvættinn úr kvikmyndinni Pretador. Della, sagði Brynja Þorgeirsdóttir, en dokum við - þegar betur er að gáð reynist þessi líking hafa heilmikið kjöt á beinunum. Fyrir utan það að borgarstjórinn misskilur hlutverk sitt innan hennar.

Predator fjallar um hóp úrvalshermanna sem undir forystu Arnold Schwarzenegger er sendur inn í frumskóg í Mið-Ameríku til að uppræta eiturlyfjahring. Fljótlega verða kapparnir varir við óvætt frá framandi plánetum, sem situr um þá. Hefst þá leikur kattarins að músinni.

Algengt er að líkja frumskóg við borg. Í þessu samhengi táknar óvætturinn sem hefur hreiðrað um sig þar hið pólitíska vald; báknið sem gleypir þá sem hætta sér inn fyrir mæri þess. Besti flokkurinn er því augljóslega schwarzneggska sérsveitin, sem ryðst inn í skóginn og storkar valdajafnvæginu. (Það dregur síst úr mætti líkingarinnar að tveir hermannanna eru leiknir af skemmtikröftum sem síðar komust til metorða í stjórnmálum; Schwarzenegger varð ríkisstjóri Kaliforníu og Jesse Ventura varð ríkisstjóri Minnesota).

Sé líkingunni haldið til streitu öðlast atburðarás myndarinnar hugsanlegt spádómsgildi. Eftir að geimveran hefur kvistað niður alla aðra úr hópnum , flegið þá lifandi og rifið úr þeim hauskúpuna, verður það Arnold óvænt til lífs að maka á sig drullu sem skepnan sér ekki í gegnum og kjölfarið nær hann undirtökunum.

Í epískum lokabardaga fellir óvætturinn (valdið) loksins grímuna og sýnir sitt rétta andlit. „You're one ugly motherfu***er," mælir þá Arnold en skrímslið svarar með sömu orðum. Hér verður ákveðin speglun og vöðvafjallið áttar sig á að ef til vill er ekki ýkja mikill munur á því og dýrinu. Þegar geimveran sér sæng sína upp reidda ræsir hún litla kjarnorkusprengju á úlnliðnum og grandar sér og öllu kviku í kring en Arnold á fótum fjör að launa.

Þetta er kannski sú staða sem Gnarr og Besti flokkurinn standa frammi fyrir: að eina leiðin til að sigra hefðarvaldið sé að kasta sér ofan í hið pólitíska svað og velta sér upp úr því. Um leið þarf að hafa hugfast að gamla valdabáknið eirir engu þegar það sér fram á eigin endalok.

Ágætt framtak borgarstjórnar var að opna listabíó í gamla Regnboganum. Hvernig væri að sýna Predator fljótlega. Svona fyrir þá sem vilja glöggva sig á borgarmálum.


Tengdar fréttir

Úttekt: Jón Gnarr á mannamáli

Margir áttu erfitt með að átta sig á öllu sem Jón Gnarr sagði í viðtali við Brynju Þorgeirsdóttir í Kastljósinu í gær. Hann virðist hafa ruglað saman kvikmyndunum Ghost og Sixth Sense, líkti Besta flokknum við svikahrapp, sjálfum sér við geimveru og viðurkenndi að hafa lagt samstarfsmenn sína í einelti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×