Bakþankar

Hreint fyrir dyrum

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Fyrir fáeinum misserum voru á dagskrá Stöðvar tvö þættir sem nefndust Extreme Makeover, eða Ærleg yfirhalning. Þar gafst sérútvöldu fólki tækifæri til að gangast undir rækilega yfirhalningu með aðstoð læknavísindanna, leikfimikennara og snyrtifræðinga. Þættirnir voru mjög vinsælir og því sjálfsagt engin tilviljun að Framsóknarflokkurinn, sú nýjungagjarna hreyfing, ákvað að tileinka sér þessa hugmyndafræði í kosningabaráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2006.

Í stað þess að leggja áherslu á stefnumál og hugmyndafræði voru frambjóðendur flokksins skikkaðir í megrun, brúnkusprautun, klæddir í tískuföt og sendir í myndatöku hjá Photoshop-kunnandi mönnum.

Árangurinn varð minni en vonast var til. Eftir uppskerubrestinn í kosningunum 2006 og 2007 varð bændaflokknum ljóst að það þyrfti meira til en að senda elsta soninn á akurinn klæddan skartklæðum - taka þyrfti til hendi á sjálfu býlinu.

Það þurfti með öðrum orðum að grípa til róttækari meðala. En hvað er róttækara en Extreme Make­over? Jú, Extreme Makeover: Home Edition. Í þeim þætti þefar hópur vaskra manna og kvenna upp fólk sem lífið hefur leikið grátt og hokrar í svo niðurníddum húsum að umrenningar myndu varla þiggja þar gistingu. Hjálparteymið mætir á svæðið, ásamt dágóðum hópi verkamanna, rífur hjallinn og byggir nýtt og glæsilegt hús frá grunni á innan við viku.

Framsóknarflokkurinn er sannarlega óðal sem má muna fífil sinn fegri; hann minnir nú einna helst á þurrabúð fyrir pólitískt hústökufólk. En óttist eigi; hönnunarteymið er mætt og hvetur viljuga verkamenn og týnda syni til að rífa niður hverja fúaspýtu og ryðgaðan nagla. Upp skal rísa tígulegur bústaður í klassískum evrópskum stíl með bláu, stjörnuþöktu hvolfþaki; smekklegur en laus við íburð; heimilislegar innréttingar í stað hinna stílhreinu og kuldalegu; svefnherbergin máluð í nostalgískum litum samvinnuhreyfingarinnar; út af eldhúsinu er rúmgott búr fyrir allar afurðirnar; og í stofunni er voldugur arinn, sem samningnum við Finn í Samtryggingum verður kastað á við fyrsta tækifæri.

Einhvern veginn svona líta teikningarnar að nýja heiðarbýlinu að minnsta kosti út. Hvort útkoman verði áþekk á eftir að koma í ljós. En þetta á auðvitað eftir að kosta skildinginn og erfiðisvinnu að halda við. Vonum að kvaðirnar verði ábúendunum ekki ofviða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×