Bakþankar

Þegar Musso var málið

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Munið þið þegar þeirri skrítnu hugmynd skaut niður á Íslandi að enginn væri maður með mönnum nema hann eignaðist straumlínu­­lagaðan jeppa sem hét hinu af­spyrnu kjánalega og óþjála nafni SsangYong Musso?

Burgeisarnir á Seltjarnarnesi og í Garðabæ sáu auðvitað við nýja­­bruminu og héldu sig við Pajero og Patrol en stéttirnar sem voru ný­­búnar að brjótast til velmegunar féllu kylliflatar fyrir þessu kóreska þarfaþingi - ekki síst úti á landi.

Á landsbyggðinni slógu oddvitar, sýslumenn og orkubústjórar tóninn og í kjölfarið fylgdu trillukarlarnir; annar hver seldi kvótann, settist upp í Löduna og ók suður með peningana en sneri aftur á Musso. Um stutt skeið var sómi sjávar­byggða metinn í fjölda Musso-jeppa. Að koma frá tíu Mussoa bæjarfélagi vestur á fjörðum þótti um tíma hreint ekki ónýtt; sýndi að verðmætasköpunin hefði aldeilis borið ávöxt og menn komið ár sinni vel fyrir borð.

Svo hallaði á ógæfuhliðina. Verk­fræðingarnir í Seúl höfðu ekki sýnt þá fyrirhyggju að gera ráð fyrir hinum alræmdu „íslensku aðstæðum" (það er að segja hand­­ónýtu vegakerfi) og fyrr en varði fylltust bílaverkstæði af Musso-jeppum með ónýta vatnskassa, bilaðar sjálfskiptingar og brotin drif­sköft. Trillukarlar sátu uppi kvótalausir með ónýtan jeppa og grétu Lödurnar sárt.

Þetta var áfall, ekki síst fyrir sjálfsmynd margra hinna dreifðu byggða. Sjálfur var ég á bíl­prófs­­aldri á þessum tíma og man vel að skyndilega þýddi lengur ekki að slá um sig með þeirri staðreynd að vera frá tíu Mussoa þorpi. Í einu vetfangi var Kóreujeppinn orðinn að tákngervingi stöðnunar.

Það verður hins vegar ekki af jeppainnflytjendum tekið að þeir lærðu af reynslunni því undanfarin áratug hefur ekki sá jeppi verið fluttur inn til landsins án þess að auglýst sé að hann sé „sérhannaður fyrir íslenskar aðstæður" - með öðrum orðum hægt að aka honum fyrirhafnarlaust frá Reykjavík til Akureyrar. Það er hins vegar engum lengur kappsmál að eignast Musso. Af og til er þó hægt að rekast á smáauglýsingar í dag­blöðunum þar sem eigendur ónýtra Musso-jeppa reyna að pranga varahlutum hver inn á annan.

Það er auðvelt að vera vitur eftir á. Niðurlæging Musso-skeiðisins varði sem betur fer stutt en kenndi okkur dreifurunum aftur á móti að meta að verðleikum bifreiðina sem tryggði að við kæmumst leiðar okkar hvað sem á gekk. Hvenær skyldi Lödu-setrið verða opnað?



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×