Bakþankar

Dýr dropi

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Hvað rekur sjötugan hollenskan ferðamann á húsbíl til að smygla 190 kílóum af eiturlyfjum til Íslands? Mér finnst ekki ólíklegt að sá hollenski hafi kynnt sér bensínverðið á Íslandi áður en hann lagði í hann og komist að þeirri niðurstöðu að ef hann ætlaði að keyra hringveginn kæmi hann með þessu móti kannski út á sléttu.

Endrum og eins erum við minnt á hversu mikil lífsgæði eru fólgin í að komast hratt og örugglega á milli staða. Síðast gerðist það líklega árið 1997, þegar bensín­afgreiðslufólk fór í verkfall. Það var hins vegar tíma­bundið ástand. Allt bendir til að eldsneytishækkanir undanfarinna mánuða séu varanlegar og við sjáum ekki fyrir endann á afleiðingunum.

Hækkanir á eldsneytisverði hafa sína kosti. Til margra magurra ára þjónaði jeppinn til dæmis því hlutverki fyrst og fremst að vera stöðutákn vel stæðra karla sem vildu bæta fyrir innra óöryggi með því að berast á. Þetta var gott ástand sem tryggði félagslegt gagnsæi. Í góðæri liðinna ára hefur hins vegar verið gengið rækilega á sérkenni hinna sterkefnuðu og hvalkynja bensín­svelgir eru nú til á öðru hverju heimili. Ef fer sem horfir færist ástandið hins vegar bráðum aftur í eðlilegt horf og það þarf enginn að velkjast í vafa um að þeir fáu sem aka áfram jeppa hafa efni á því.

En ókostirnir eru hins vegar líka farnir að láta sé kræla. Bensín er til dæmis að ríða hinu opinbera á slig; það styttist í að lögreglan þurfi að meta hvert útkall eftir því hvort það svari bensínkostnaði og áður en langt um líður verða sjúkra- og slökkviliðsbílar skikkaðir til sparaksturs í neyðarútköllum. Það á eftir að verða bylting í samgöngumálum. Sjálfur hóf ég mína eigin byltingu í síðustu viku, þar sem ég stóð fyrir framan bensín­dælu og gnísti tönnum. Það var ekki aðeins tankurinn sem var fullur heldur líka mælirinn - dropinn hafði holað steininn. Ég steytti hnefa í átt að fána olíufélagsins og strengdi þess heit að kaupa ekki aftur bensín. Í þessum mánuði.

Mín litla ráðdeild má sín hins vegar lítils í hinu stóra samhengi, allir þurfa að leggja sitt af mörkum. Ég legg til að ríkisstjórnin, sem á víst í ímyndarkröggum í umhverfismálum, gangi á undan með góðu fordæmi. Hvað um að skipta ráðherrajeppunum út yfir sumarmánuðina fyrir ráðherravespur?



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×