Bakþankar

Hví að kjósa?

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Gott kvöld góðir gestir og verið velkomin í Útsvar. Þátturinn í kvöld verður með dálítið breyttu sniði. Einu sinni sprakk ríkisstjórn í beinni útsendingu, en nú verður ríkisstjórn mynduð í beinni útsendingu. Næstu þrjá föstudaga munu fjórir stjórnmálaflokkar keppa um hverjir komast í næstu stjórn. Þetta er í fyrsta sinn sem ríkisstjórn er valin með þessum hætti og kemur ýmislegt þar til, til dæmis sú staðreynd að það er víst ekki hægt að boða til aukakosninga um vetur og ekki síður sú staðreynd að RÚV bráðvantar ódýrt sjónvarpsefni eftir sársaukarfullan niðurskurð - ekki satt Þorgerður Katrín? Haha! Neinei, þetta er nú bara létt grín."

Já, eins og Sigmar benti á keppa fjórir flokkar í þessari sérútgáfu af Útsvari, en eins og glöggir áhorfendur kannski vita eru fimm flokkar á þingi. Útvarpsráð ákvað hins vegar að stigalægsta tapliðið í síðustu alþingiskosningum kæmist ekki í undanúrslit. Hér gildir sem fyrr útsláttarfyrirkomulag; sigurvegararnir í fyrri umferðum mynda saman ríkisstjórn en í úrslitaþættinum verður keppt um sjálft forsætið."

Takk fyrir þetta Þóra. Þið þekkið þetta. Við byrjum á bjölluspurningum og að því loknu dembum við okkur í látbragðsleikinn. Þar verða keppendur að gera grein fyrir stefnumálum með látbragði og handapati. Það er svo undir áhorfendum komið að giska á hvaða málaflokk verið er að lýsa. Þetta gefur Geir kannski smá forskot; sama hvaða málaflokk er verið að tala um þarf hann ekki að gera annað að yppa öxlum!"

Alveg rétt Sigmar, alveg rétt, nema kannski þegar spurt er um vanhæfi Seðlabankans, þá hristir Geir nú bara höfuðið, haha!. En jæja, næst snúum við okkur að valflokkunum en þar eiga liðin að svara þremur miserfiðum spurningum um hina flokkana. Út frá þeim verður svo hægt að meta hversu vel viðkomandi flokkar eiga heima saman í ríkisstjórn."

Laukrétt, Þóra. En þetta er ekki búið. Að lokum geta liðin valið sér fimm, tíu eða fimmtán prósenta fylgisaukninu, en þess ber að gæta að að spurningarnar verða erfiðari eftir því sem stigunum fjölgar. En hér eru auðvitað stjórnmálamenn að keppa og ósanngjarnt að neyða þá til að svara á grundvelli samvisku sinnar eða skynsemi. Þannig ef einhver spurning er svínslega erfið má alltaf hringja í vin, sem bíður átekta á flokkslínunni."







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×